152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[16:28]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Nú fyrir stundu blasti við frétt í Fréttablaðinu um að skorsteinninn hefði fokið af ráðherrabústaðnum. Ég geri nú ráð fyrir að það hafi verið djúpri lægð að kenna en atburðurinn getur samt alveg endurspeglað þann ágreining sem hefur átt sér stað á milli einstakra flokka í ríkisstjórninni á síðustu mánuðum um sóttvarnaaðgerðirnar.

Það sem mér fannst einna markverðast í þessari umræðu voru samræður hv. þm. Sigmars Guðmundssonar við hæstv. fjármálaráðherra sem mér finnst eiga skilið að þeim sé gefinn aðeins gaumur. Það voru fleiri en hv. þingmaður sem fylgdust með því í Kastljósi þegar helltist yfir hæstv. ráðherra skyndileg löghlýðni og hann efaðist um að lagastoð væri fyrir núverandi sóttvarnaaðgerðum. Það hlýtur að vera áhugaverð staða fyrir þau fyrirtæki sem nú á þessari stundu eru í hvað hörðustu kreppunni og gefur þeim væntanlega væntingar um stuðning eða jafnvel kröfur, vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra er auðvitað ekki hver sem er í samfélaginu. Ég vil kannski ekki taka jafn djúpt í árinni og hæstv. ráðherra en ég gleðst vissulega yfir því svigrúmi sem er til staðar til afléttinga. Ég minni bara á að það þarf að gera það með ákveðinni varkárni. Þau skref þurfa að miðast við að heilbrigðiskerfið ráði við framhaldið og að viðkvæmustu hóparnir séu áfram varðir.

Hæstv. fjármálaráðherra fullyrti hér áðan að ójöfnuður hefði ekki aukist í samfélaginu og vísaði auðvitað í meðaltöl sem segja ekki nema hálfan sannleika. Samkvæmt skýrslu hjálparsamtakanna Oxfam hafa hinir ríkari orðið enn ríkari og þeir fátæku fátækari og hér innan lands, í rannsókn Vörðu -- rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, eru einnig vísbendingar um að stórir hópar hafi það verr fjárhagslega nú en fyrir ári og að vanlíðan hafi aukist. Þetta á t.d. sérstaklega við um láglaunafólk, innflytjendur, einstæða foreldra og barnafólk. Þetta verður að vera eitt af meginverkefnum ríkisstjórnarinnar. Þó svo að við komumst út úr sóttvarnaaðgerðum þá þurfum við að sjá til þess að allir séu á góðum stað þegar við förum út í hið venjulega líf. Það á einnig við um það ójafnvægi sem hefur myndast í atvinnulífinu. Þá þarf sérstaklega að huga að þeim fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir barðinu á þessari skelfilegu og leiðinlegu veiru.