efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Í upphafi faraldursins var strax ljóst að ríkisstjórnin ætlaði að einblína á atvinnulíf og efnahag en ekki einstaklinga og fjölskyldur. Ég lýsti þessum áhyggjum strax vorið 2020 og benti á að stór hluti fjármagnsins sem ríkisstjórnin hefði nýtt í efnahagsleg viðbrögð við faraldrinum hefði farið í að ríkisvæða uppsagnir fyrirtækja sem er alveg jafn galin framkvæmd núna í baksýnisspeglinum, að borga fyrirtækjum fyrir að segja fólki upp.
Nú, forseti, er tækifæri til að kanna hvaða áhrif efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa haft og draga lærdóm af. Í skýrslu ASÍ frá júní á síðasta ári, um efnahagsleg áhrif Covid-19 faraldursins, kemur fram að neikvæð áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar komi þyngst niður á þeim hópum sem hafa lægstar tekjur og á sama tíma fái hin ríku tækifæri til að auka auð sinn vegna hækkunar á hlutabréfamörkuðum og húsnæðisverði. Kreppan hefur aukið verulega aðstöðumun hópa og stétta. Sum erfiðustu og verst launuðu störfin hafa orðið erfiðari vegna sóttvarnaráðstafana og smithættu. Tekjulægstu stéttirnar sinna oftar en ekki nauðsynlegri þjónustu og umönnunarstörfum og í skýrslu ASÍ er sérstaklega vísað til starfsfólks leikskóla og dvalarheimila, afgreiðslufólks og ræstingafólks. Þau sem bera þyngstu byrðarnar af kreppunni eru þó þau sem hafa misst vinnu og þau sem eru líklegust til að sinna þeim störfum sem hafa lagst af í faraldrinum eru láglaunafólk. En þegar fjöldi atvinnulausra náði sögulegum hæðum í faraldrinum ákvað ríkisstjórnin ekki að auka stuðning við þann hóp, að undanskilinni minni háttar framlengingu á tekjutengdum bótum, það kom ekki til greina að hækka berstrípaðar atvinnuleysisbætur því að fjármálaráðherra þótti það vera bjögun, eins og hann komst að orði. Það var ekki fyrr en eftir linnulausa gagnrýni stjórnarandstöðunnar, verkalýðshreyfingarinnar og hagsmunasamtaka sem ríkisstjórnin gaf sig og hækkaði atvinnuleysisbætur.
Forseti. Það liggur fyrir að ríkisstjórnin setti allt sitt púður í að bjarga fyrirtækjum og þá einna helst stórfyrirtækjum frekar en að hjálpa einstaklingum og fjölskyldum. 10 milljarðar í viðspyrnustyrki, 2,8 milljarðar í lokunarstyrki, 11,3 milljarðar í tekjufallsstyrki 2,1 milljarður í ferðagjöfina, 12 milljarðar í að greiða fyrir uppsagnir. Allt til fyrirtækja. Tæplega 13 milljarðar fóru í endurgreiðslu af virðisaukaskatti til að eignafólk gæti endurnýjað eldhús- og baðinnréttingu. Það eru nákvæmlega svona aðgerðir, forseti, sem ýta undir ójöfnuð. Á sama tíma hefur listafólk og einyrkjar orðið fyrir miklum tekjumissi án teljandi aðstoðar frá ríkisstjórninni. Ungt fólk líður sérstaklega fyrir samdrátt í atvinnutækifærum og á erfiðara með að komast í starf við hæfi en áður. Þetta er alvarleg staða, forseti. Yfir helmingur atvinnulausra neitaði sér um heilbrigðisþjónustu á sex mánaða tímabili á síðasta ári.
Það liggur fyrir að ein stærsta afleiðing Covid-19 faraldursins er (Forseti hringir.) gríðarleg aukning í ójöfnuði. Það sem við hljótum að þurfa að horfast í augu við núna (Forseti hringir.) er að aðgerðir ríkisstjórnarinnar ýttu undir þá þróun frekar en að hægja á henni.