efnahagslegar ráðstafanir vegna Covid-19, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir munnlega skýrslu um efnahagsráðstafanir vegna Covid-19. Ég held að það hafi verið vel til fundið að hafa þessa umræðu. Ég vil byrja á að segja að mér finnst sú stefna sem mörkuð var í upphafi, að forgangsraða í sóttvarnalegu tilliti lífi og heilsu landsmanna, hafa tekist gríðarlega vel og skipt miklu máli. Við sjáum bara tölurnar um það, sem betur fer hafa tölur um dauðsföll hér á Íslandi verið mun lægri en í mörgum löndum í kringum okkur. Það skiptir svo sannarlega máli þegar farið er í gegnum heimsfaraldur að það takist vel í sóttvarnalegu tilliti. Við höfum hlustað á ráð færustu sérfræðinga og þeirra ráð hafa dugað þegar kemur að því að halda sjúkdómnum í skefjum. Við þurfum að hafa úthald allt til enda hans við að gera það og bregðast við þeim aðstæðum sem upp koma í samfélaginu þegar veiran tekur breytingum. Ég vona svo sannarlega að við séum að komast á lokastaðinn, en þegar um veiru er að ræða þá vitum við ekki alveg hvað gerist næst og þess vegna þurfum við að halda áfram að hlusta á okkar færustu sérfræðinga í þeim efnum. Það hefur skilað okkur vel hingað til.
En til að glíma við veirufaraldurinn hafa hinar efnahagslegu ráðstafanir skipt gríðarlega miklu máli og mér fannst hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra draga það vel fram í sinni skýrslu að efnahagsaðgerðirnar hafa að mestu leyti tekist vel hér á Íslandi. Allar tölur og skýrslur hingað til sýna það. Eitt af því sem ég held að margir finni fyrir mjög glöggt á eigin skinni eru tölurnar varðandi atvinnuleysið. Okkur hefur sem betur fer tekist að koma í veg fyrir að verstu spár um að atvinnuleysi yrði mikið til lengri tíma raungerðust. Það er m.a. vegna þess að gripið hefur verið til réttra aðgerða. Við þurfum að halda áfram allt til enda með efnahagslegu aðgerðirnar og ég tel mikilvægt, líkt og boðað hefur verið, að þeim verði beint núna sérstaklega til þeirra sem verða fyrir hvað mestum efnahagslegum áhrifum af því sem vonandi eru lokametrar faraldursins.
Á sama tíma finnst mér hafa skipt miklu máli að við höfum stutt við hin ýmsu félagslegu kerfi sem tryggja velferð og stuðla að bættri líðan fólks. Það kemur til með að hafa áhrif þegar við vinnum úr afleiðingum faraldursins. Það er eitt af því sem gerir samfélag að góðu samfélagi. Þess vegna þurfum við að klára þetta allt til enda og halda áfram að gera það með almannahag, velferð og jöfnuð að leiðarljósi.