breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann fór að vísu um víðan völl en ég held að ég skilji spurninguna, þ.e. að það liggi ekki alveg skýrt fyrir hvert verkefnið er þannig að hægt sé að meta hvort aðgerðin takist vel eða ekki. Já, þá er það bara spurningin um hvert eðli starfa okkar er. Ég get alveg tekið undir að þessar ársskýrslur eru kannski bara eitt ágætt tæki. Í tíð síðustu ríkisstjórnar, á síðasta kjörtímabili, var það t.d. alltaf sett opinberlega fram hvenær markmið stjórnarsáttmála voru kláruð og hvernig þeim miðaði með árunum. Það er eitt tæki sem hægt er að nota. Þessi þingsalur er vissulega eitt tæki sem hægt er að nota til að halda þingmönnum og ráðherrum við efnið, hvort verið sé að standa við þau loforð og markmið sem lagt er af stað með í upphafi kjörtímabils.
Varðandi spurninguna um það sem kallað er stofnanamúr — innan stjórnkerfisins er almennt talað um síló — þá var ég á síðasta kjörtímabili í Stjórnarráðinu. Ég veit ekki hvort þetta lætur öðruvísi í mínum eyrum af því að ég kem þaðan, það getur vel verið, en mér fannst eiginlega einhugur um að auka þyrfti samtalið á milli ráðuneyta og lyfta aðeins upp, rótera aðeins á milli, taka verkefni frá einum og færa til annars til þess líka að skapa breiðari þekkingu á milli mismunandi ráðuneyta. Hv. þingmaður vísar til greinargerðarinnar og ég skil það þannig að það sé meiningin. Það er þekkt stef innan Stjórnarráðsins að þetta þurfi að laga og þetta mál er viðleitni til þess.