152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[18:59]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að segja að ég er ekki andsnúinn því að ríkisstjórn hvers tíma skipuleggi ríkisstjórn eins og hún vill hafa hana, það er algerlega undir henni komið. Það er mikilvægt að hún taki þá áherslumálin fyrir og setji þau jafnvel í ráðuneyti. En það verður líka að vera ákveðin festa í stjórnskipuninni og í ráðuneytunum og fólk verður líka að þekkja nöfnin, vita hvað er verið að tala um á hverjum tíma. Þær breytingar sem núna hafa verið gerðar bera þess ekki merki. Þær bera þess merki að það á að gera eitthvað nýtt og sniðugt, þetta er „marketing“, þetta á að selja. Það á að gera það og búa líka til nýtt ráðuneyti fyrir Framsóknarflokkinn, þar sem á að fjölga um eitt ráðuneyti.

Ég vil byrja á því segja að þessi tillaga, þetta plagg hér, tillaga til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands — ég vil meina það og hélt því fram í fyrri umr., það segir hérna, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar, með vísan til 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, að styðja fyrirhugaða breytingu á fjölda og heitum ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem felur í sér að í stað …“ — og svo eru talin upp fimm ráðuneyti og þau sjö sem koma í staðinn fyrir þau, ég tel óþarft að telja þau upp.

Þetta er gert með vísan til 2. gr. Hvað segir í 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands? Þar segir í 2. málslið, með leyfi forseta:

„Ákveða skal fjölda ráðuneyta og heiti þeirra með forsetaúrskurði, sbr. 15. gr. stjórnarskrárinnar, samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Tillagan skal lögð fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu sem komi þegar til umræðu og afgreiðslu áður en forsetaúrskurður er gefinn út.“

Þessi þingsályktunartillaga hér er ekki tillaga að forsetaúrskurði. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands gerir kröfu um það að forsætisráðherra Íslands leggi fram tillögu sína að forsetaúrskurði. Það er það sem við eigum að ræða um. Það er það sem við eigum að fjalla um. Formið á þessum úrskurði, þessari tillögu til þingsályktunar, er rangt. Hún stenst ekki 2. gr. Þingið ætti með réttu að vísa þessari þingsályktunartillögu frá þar sem hún stenst ekki form. Það er ekki farið að 2. gr., það er alveg kristaltært í mínum huga, þ.e. að tillagan skuli lögð fyrir Alþingi. Sú tillaga er tillaga forsætisráðherra að forsetaúrskurði sem hann leggur síðan fyrir forseta Íslands til undirritunar. Þannig á málsmeðferðin að vera, að forsætisráðherra Íslands leggi fram tillögu að forsetaúrskurði fyrir Alþingi Íslendinga með vísan til 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands til samþykktar eða synjunar. Þegar Alþingi er búið að samþykkja þá tillögu að forsetaúrskurði þá undirritar forsætisráðherra Íslands hana og fer með hana til forseta Íslands og þar er þetta undirritað af forseta Íslands. Það er í samræmi við lögin, 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, og það er í samræmi við 15. gr. stjórnarskrárinnar. Það eru rétt lög í landinu. En sá grautur sem hér er verið að bjóða upp á, sem enginn skilur og hefur mikið verið fjallað um það, kynnir ekki fyrir okkur þær breytingar sem eiga sér stað í Stjórnarráði Íslands núna.

Þessi þingsályktunartillaga er bara hálfur sannleikur og ég ætla að tala aðeins nánar um það. Þannig er mál með vexti að það er þegar búið að gefa út tvo forsetaúrskurði sem lúta að breytingum á skipan Stjórnarráðs Íslands. Gefinn var út forsetaúrskurður 28. nóvember, forsetaúrskurður um skiptingu ráðuneyta, nr. 126. Sama dag var gefinn út forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 125, dagsettur 22. nóvember 2021. Það er ekki hægt að skilja breytingar á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands án þess að skoða þessa tvo úrskurði. Það er ekki hægt. Enginn mun geta skilið þessa breytingu með því að lesa þingsályktunartillöguna eina. Það er bara ekki hægt, svo það sé alveg á kristaltæru.

Það verður líka að lesa þessa forsetaúrskurði hér. Svo við byrjum á því. Skoðum t.d. forsetaúrskurðinn um skiptingu starfa ráðherra frá 28. nóvember 2021. Þar segir í 2. gr.: „Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra“. Það var í nóvember síðastliðnum. Í nóvember síðastliðnum var líka talað um sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í 8. gr. Í 12. gr. var talað um vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta voru þær breytingar sem ríkisstjórnin ætlaði sér að gera í lok nóvember. Núna er búið að breyta ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, sem á skyndilega í janúar, samkvæmt þeirri tillögu sem hér er til umfjöllunar, að heita menningar- og viðskiptaráðherra. Búið er að breyta nafninu. Stöðugleikinn er svo mikill og það var búið að hugsa þetta svo mikið út í nóvember að búið er að skipta um skoðun. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, samkvæmt forsetaúrskurði 28. nóvember, forsetaúrskurði nr. 126, á að vera matvælaráðherra núna. Ég get fjallað nánar og betur á um það á eftir. Svo kemur rúsínan í pylsuendanum og það var nýtt nafn á ráðherra. Sá ráðherra var nefndur upp á nýtt, hét vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra samkvæmt forsetaúrskurði 20. nóvember en núna hefur einhverjum dottið eitthvað sniðugra í hug, hver sem ástæðan er fyrir því, við getum rætt það líka, og nú heitir það háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, þ.e. vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á að vera ráðherra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Það er klárlega misræmi þarna milli, að ráðherra vísinda sé ráðherra í ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar.

Þetta segir alla söguna um hversu vanhugsað þetta er og hve illa unnið og hversu mikið fúsk þetta er, öll þessi breyting. Einhverjum hefur dottið í hug: Nei, við ætlum ekki að kalla þetta vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, við ætlum að kalla ráðuneytið háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. Svo ég útskýri það nánar þá er ráðuneyti bara skrifstofa ráðherra. Allt er unnið í hans nafni og það að hafa misræmi milli nafnsins á ráðherranum og ráðuneytinu gengur einfaldlega ekki upp. Hvað þarf að gera? Það þarf að breyta úrskurði frá því í nóvember síðastliðnum, uppfæra hann í samræmi við þá tillögu sem hér er til umfjöllunar.

Þetta er það sem er í gangi hérna. Ég tel að vísa þurfi frá því plaggi sem hér liggur frammi og forsætisráðherra eigi að koma með tillögu að forsetaúrskurði. Það er það sem á að leggja fyrir Alþingi Íslendinga. Ég óskaði fyrir jól eftir lögfræðiáliti frá forsætisráðuneytinu um þessa skoðun mína og þar kemur klárlega fram að þeir hafa ekki lesið lagatextann í ákvæðinu í 2. gr. Það er vitnað í greinargerð laganna. Það er grundvallaratriði í lögfræði að lesa lagatextann. Ég man að ég kom líka með þetta varðandi kjörbréfanefnd. Þar var mjög mikilvægt að lesa lagatextann, það sem lögin segja.

Svo segir, með leyfi forseta, í tölvupóstinum sem ég fékk loksins í dag:

„Eins og sjá má af álitinu var tilgangur breytinganna að tryggja að þingheimur fengi tækifæri til að fjalla efnislega um fyrirhugaðar breytingar á fjölda ráðuneyta í formi þingsályktunartillögu í samræmi við ákvæði þingskapalaga.“

Til að þingheimur geti fjallað efnislega um fyrirhugaðar breytingar að fullu þá verður líka að skoða forsetaúrskurðina frá því í nóvember. Eingöngu þannig er hægt að skilja þessar breytingar. Það er ekki hægt að skilja breytingarnar einungis út frá þessu plaggi, það er bara ekki hægt. Ég skal segja ykkur af nákvæmlega af hverju það er. Það er t.d. vegna þess að forsetaúrskurður nr. 125 frá 28. nóvember, sem er um skipan stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, er lykillinn að þessu. Þar er fjallað um stjórnarmálefni sem flytjast á milli ráðuneyta, ekki bara einhverjar nafnabreytingar. Efnislega breytingin var gerð í nóvember. Það er það sem skiptir máli, virðulegi forseti. Það var allt saman ákveðið í forsetaúrskurðinum í nóvember. Svo fáum við plagg hérna um einhverjar nafnabreytingar, að fimm ráðuneyti skuli nú heita eitthvað annað, það koma ráðuneyti í staðinn fyrir þau og meira að segja þannig að það er komið háskólaráðuneyti í staðinn fyrir vísindaráðuneyti. Svona vinnubrögð eiga ekki að vera tíðkuð á Alþingi Íslendinga. Þetta gengur ekki upp. Ég er því miður ekki í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en nefndin ætti að fjalla um þetta atriði. Ég mun reyna að koma því að í nefndinni að fjallað verði um þetta svo það liggi a.m.k. skjalfest fyrir að Alþingi Íslendinga er að samþykkja tillögu til þingsályktunar sem stenst ekki 2. gr.

Ég tel rétt að fjalla aðeins um lög um um Stjórnarráð Íslands. Ég tel að þau séu meingölluð. Ég veit að það voru miklir lögspekingar þess tíma sem stóðu að samningu þeirra, Bjarni Benediktsson og Ólafur Jóhannesson, en ég tel að lög um Stjórnarráð Íslands stangist á og séu ekki að fullu í samræmi við aðskilnað ríkisvaldsins, þ.e. 2. gr. stjórnarskrárinnar. Aðkoma Alþingis Íslendinga að skipan ráðuneyta er ekki — skoðum 2. gr. stjórnarskrárinnar og líka 15. gr. þar sem segir skýrum stöfum, með leyfi forseta:

„Forsetinn skipar ráðherra og veitir þeim lausn. Hann ákveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim.“

Þar segir ekkert um það að Alþingi eigi að koma að starfaskiptingu ráðherra. Það segir ekkert um það í stjórnarskránni, ekki neitt. Samt hefur einhver ákveðið að Alþingi Íslendinga eigi að koma að skiptingu starfa milli ráðherra. Það segir í 15. gr. að forseti ákveði tölu ráðherra. Það segir ekkert um það að Alþingi Íslendinga eigi að ákveða tölu ráðherra, ekki neitt.

Það er eðlilegt að koma þessu að. Ég ætlaði að skrifa grein um þetta en vegna jólafría og annars hefur ekki unnist tími til þess. Það getur vel verið að maður stingi niður penna til að fjalla nánar um þetta vegna þess að bara framsetningin á þessari tillögu, hvernig hún er lögð fram, upplýsir ekki þingheim um fyrirhugaða breytta skipan á Stjórnarráði Íslands. Þingmenn verða að lesa forsetaúrskurðina frá því í nóvember, þeir verða að gera það, sérstaklega þann nr. 125 því að þar eru málefnin sett undir ráðherrana. Enda heitir hann líka forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Það var töluvert fjallað um þetta í fyrri umr. og við getum tekið eitt dæmi sem hefur komið upp hérna, að það er komið matvælaráðuneyti. Það vakti mikla kátínu á sínum tíma, ég man að það var á einhverjum næturfundinum, að í nýtt matvælaráðuneyti flytjast málefni skóga, skógræktar og landgræðslu. Skógar og landgræðsla eru ekki matvæli. Það er svo mikilvægt, virðulegi forseti, þegar við gefum ráðuneyti nöfn að þá sé í fyrsta lagi einhver festa í þeim, að fólk viti hvað verið er að tala um og fólk geti rætt um stjórnkerfið, Jón og Gunna, hið venjulega fólk, almenningur í landinu, og þekkt stjórnkerfið. En viti menn, ef einhver ætlar að fara að tala um landgræðslu og tala um stjórnvöld þá er það matvælaráðuneytið. Hverjum getur dottið það í hug? Engum. Það eru ráðuneyti hérna sem byggja á mikilli hefð sem heita sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Það var verið að tala um sjávarútvegsmál áðan og það var sjávarútvegsráðherra sem kom og svaraði fyrir þau. Þetta eru atvinnugreinar. En það að fara að kalla það matvælaráðuneyti er einfaldlega ekki rétt. Þetta er bara til að rugla almenning í ríminu og ekkert annað.

Við getum líka tekið menningar- og viðskiptaráðuneytið. Í haust var þar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra en hann mun núna setjast í menningar- og viðskiptaráðuneyti. Þarna er misræmi milli nafnsins á ráðherranum og ráðuneytinu. Það gengur ekki upp. Líklega mun forsætisráðherra koma með tillögu að tveimur forsetaúrskurðum, annars vegar lagfæringu á öðrum nóvemberúrskurðinum og svo þennan nýja úrskurð. Það er það sem hann getur gert, vegna þess að ef hann tekur bara úrskurðinn sem byggist á þeirri þingsályktunartillögu sem hér er til afgreiðslu þá er misræmi milli nafnsins á ráðherranum og ráðuneytinu. Það gengur ekki upp. Það vita allir. Þá verður vísindaráðherrann í háskólaráðuneytinu.

Þetta sýnir hvers konar grautur þetta er allt saman og hversu vanhugsað og illa unnið og mikið fúsk þetta er. Það stenst ekki 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Ég legg það til, og lagði til í fyrri umr., að lög um Stjórnarráð Íslands verði tekin til gagngerrar endurskoðunar og verði þá í samræmi við bæði 15. gr. stjórnarskrárinnar og 2. gr. Ég vona að við getum rætt það síðar. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ég vonast til þess að geta skrifað um þetta eða við rætt um það síðar.