152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[19:16]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er raunar áhugavert sem hv. þingmaður bendir á og varðar það hversu einföld tillagan sjálf er, bara listi af heitum, nöfnum á ráðuneytum. Ef mér skjátlast ekki hefur það komið fram í punktum úr nefndarstarfinu, alla vega í okkar þingflokki, að einhverjar breytingar hefðu orðið á tilhögun verkefna ýmissa ráðuneyta vegna umsagna. Ég fer ekki nákvæmar í það, það eru ummæli frá þriðja aðila. En við sjáum þær breytingar ekkert í tillögunni sjálfri af því að þar eru bara nöfn ráðuneytanna. Við höfum ekki hugmynd um hvernig skiptingin er síðan í raun og veru. Ef einhverjar breytingar eiga að verða varða þær þá eitthvað sem fjallað er um í greinargerðinni? Það skiptir ekki máli af því að það eina sem við greiðum atkvæði um, þegar allt kemur til alls, eru þessar sjö línur af texta sem eru efst í þingsályktunartillögunni. Það er það sem tillagan er, þessar sjö línur, en greinargerðin er bara nákvæmari útskýring á því. Og þó að við greiðum atkvæði um þetta skiptir greinargerðin sem slík engu máli í þingsályktuninni eftir á. Það skiptir aðeins meira máli í tillögunni sem lögskýringargagni, kannski einhverjar smáleiðbeiningar fyrir ríkisstjórnina varðandi þingsályktunartillögur. En ef fram koma ábendingar sem leiða til breytinga, tilfærslu á því sem fjallað er um í greinargerð, ættum við að vita það. Við ættum að greiða atkvæði um það, að sjálfsögðu.