152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[19:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þingmanns sem fjallaði, í það minnsta í fyrri hlutanum, um kostnaðar- og ábatagreiningu, sem ég held að sé oft mjög mikilvæg og góðra gjalda verð og skipti máli. En ég er að reyna að stinga mér betur ofan í hvar í rauninni hv. þingmaður telur upphafið vera þegar kemur að breyttri skipan í ráðuneytum í Stjórnarráði Íslands, þ.e. nákvæmlega þessari þingsályktunartillögu. Ég vil því spyrja hv. þingmann, því að ég var ekki alveg viss um það af ræðu hans: Telur hann að forsætisráðherra eigi að geta skipað ráðuneyti í ríkisstjórn hverju sinni eða telur hann einhverja aðra leið vera betur fallna til þess? Vegna þess að hér er talað um að verkskipulagshlutverk forsætisráðherra og virk beiting þess í samræmi við þróun verkefna, nýjar áskoranir og pólitískar áherslur ríkisstjórnar á hverjum tíma séu meðal mikilvægustu stjórntækja framkvæmdarvaldsins. Því að til þess að geta farið í aðrar breytingar þá tel ég í grunninn vera að forsætisráðherra geti skipað ráðuneytum eins og stefnan er lögð upp og þjónar þeim markmiðum sem lagt er upp með og eru rakin í greinargerðinni.