breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti. Já, það er forsætisráðherra að leggja til skipun ráðuneyta til að ná markmiðum ríkisstjórnar, tvímælalaust. En hluti af því er að útskýra stefnuna fyrir þinginu og hvernig þessi skipun nær þeim markmiðum, ekki bara með því að segja að iðnaðarráðuneyti leysi þessi vandamál, heldur að útskýra hvaða vandamál er verið að leysa. Eina vandamálið sem ég heyri sagt að verið sé að leysa er að það séu einhverjir ósýnilegir veggir stjórnsýslunnar, án þess að það sé útskýrt nánar. Mig langar rosalega mikið að vita hvaða ósýnilegu veggir þetta eru, alveg gríðarlega mikið. Hvernig lýsa þeir sér? Af hverju lýsa þeir sér nákvæmlega í þeim málefnum sem verið er að flytja þarna á milli eða sem verið er að sameina í ráðuneyti? Svoleiðis útskýring er eitthvað sem við og þjóðin þarf að fá að heyra til að við getum réttlætt aukinn kostnað t.d., af því að þau vandamál kosta okkur yfirleitt eitthvert fjármagn eða vesen; lengri biðlista, ýmislegt svoleiðis, eins og hefur verið nefnt hérna varðandi húsnæðismálin. En lausnin er oft ekki, eins og hefur verið bent á í umsögn Verkfræðingafélag Íslands, sú sem sagt er að eigi að nota. Þar benda þau á að vandamálið sé fúsk, ekki reglugerðarfargan, það sé einfaldlega ekki verið að fara eftir reglunum eða stöðvunum, sem gerir það að verkum að það veldur miklum skaða. Það breytir því hvaða úrræði við veljum til að ná árangri ef við vitum hvaða vandamál verið er að reyna að leysa. Og þegar ekki er sagt hvaða vandamál er verið að leysa þá getum við ekki lagt mat á hvort þetta sé lausnin á því vandamáli eða ekki.