breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Hér fyrr í dag óskaði ég eftir að fá að taka til máls um fundarstjórn forseta þar sem Útlendingastofnun hefur beinlínis neitað að verða við beiðni þingnefndar um afhendingu gagna og upplýsinga. Nú hefur Útlendingastofnun tekið upp á því að senda þinginu, þingnefndinni, hluta af þessum gögnum en ekki öll gögnin sem farið var fram á í beiðninni. Tel ég um að ræða tilraun Útlendingastofnunar til að drepa málinu á dreif, tefja vinnslu umsókna enn frekar og áframhaldandi tilraunir Útlendingastofnunar til að stýra vinnu þingsins. Óska ég eftir því enn og aftur að forseti standi vörð um virðingu Alþingis Íslendinga og gangi á eftir því að stjórnvöld sinni lögbundinni skyldu sinni til að afhenda upplýsingar og gögn í samræmi við beiðni á grundvelli laga um þingsköp Alþingis.