störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að vekja athygli hv. þingmanna á nýrri skýrslu sem gefin var út í gær um félagslega og efnahagslega stöðu og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum sem sérfræðingarnir Kolbeinn H. Stefánsson og Helgi Eiríkur Eyjólfsson rituðu fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þetta er mjög merkileg rannsókn og greiningin á brotthvarfinu er þannig gerð að það er fjallað um það frá öðru sjónarhorni en venjulega er gert. Í stað þess að beina athyglinni inn í skólakerfið einvörðungu er verið að skoða birtingarmyndina út frá félagslegum og efnahagslegum bakgrunni ungmenna og fólks í framhaldsskólum. Það sem kemur í ljós og ætti kannski ekki að koma mörgum á óvart er að það eru tvær breytur, tveir þættir sem þar hafa mikil og kannski mest áhrif ásamt námsgetu að einhverju leyti. Það er menntun foreldra og heildartekjur foreldra. Það kemur sem sagt í ljós eða er óyggjandi niðurstaða þessarar skýrslu að það að búa á tekjulitlu heimili, það að búa við fátækt eykur líkurnar á því að þú fallir úr framhaldsskóla eða getir ekki klárað nám. Eitthvað segir manni að þetta sé eitthvað sem við ættum að vita, a.m.k. hér á hinu háa Alþingi, en samt er það þannig að þær aðgerðir sem eiga að styðja við það að börn og ungmenni hafi öll jöfn tækifæri og geti öll stundað nám fá ekki alltaf þann stuðning sem vera ber innan Alþingis. Ég held að við ættum næst þegar við tökum til umfjöllunar stuðning við barnafjölskyldur, hvort sem það eru barnabætur eða annað, og tölum um kjör öryrkja, einstæðra foreldra og annarra hópa í samfélaginu, að vera búin lesa þessa skýrslu og sjá það svart á hvítu hvernig best er að verja almannafé til að styrkja og styðja þá efnaminni í landinu.