evrópskir áhættufjármagnssjóðir og evrópskir félagslegir framtakssjóðir.
Virðulegi forseti. Fyrir mörgum er þetta eflaust bara eitthvert mál sem fjallar um einhverja skammstafanir og annað frá Evrópusambandinu. Menn halda eflaust að hér séum við bara að fylgja eftir einni reglugerð. En sannleikurinn er sá að það er mjög mikilvægt að við búum til það umhverfi sem þarf til að taka við og vera hér með slíka sjóði. Þetta á sér í lagi við þegar kemur að því sem kallað hefur verið græn fjárfesting, eða því að fjárfesta á ábyrgan, samfélagslegan hátt. Við eigum eftir að sjá mjög mikinn vöxt í slíkum sjóðum. Þau okkar sem fylgst hafa með nýsköpun og því sem er að gerast á þeim því sviði vitum að hún er einn af þeim hlutum fjárfestingarheimsins sem vaxa hvað mest. Ef við ætlum að gera Ísland að landi þar sem við höfum mikið af grænni fjárfestingu, þar sem við reynum að fá erlent fjármagn inn til að fjármagna verkefni tengd grænni nýsköpun, þá er mikilvægt að við innleiðum þetta lagaumhverfi og þetta eftirlitsumhverfi og annað sem þetta frumvarp fjallar um. Ég fagna því að farið hafi verið í það að þýða og vinna alla þá vinnu sem þarf að inna af hendi til að koma fram slíku frumvarpi, að búa til allar þessar skemmtilegu skammstafanir og þýða þær, sem hæstv. ráðherra hnaut að sjálfsögðu um vegna þess að þær eru endalausar hjá Evrópusambandinu. En þarna er verið er að fjalla um hluti sem eiga eftir að skipta sköpum til að byggja upp Ísland sem fjárfestingarland í grænni nýsköpun.