hringtenging rafmagns á Vestfjörðum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur ræðuna. Hún var prýðileg. Það er ánægjulegt að hv. þingmaður taki undir þau meginsjónarmið sem sett eru fram í þeirri þingsályktun sem hér er mælt fyrir. Það er tvennt sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um. Í fyrsta lagi: Á liðnu kjörtímabili voru uppi áform um — og fyrst vil ég segja að ég tek undir og ég styð við áform um virkjun í Vatnsfirði, ég held að hún sé skynsamleg og muni margra hluta vegna verða til mikils gagns á svæðinu. En þar voru uppi áform umhverfisráðherra um stofnun friðlýsts svæðis að hluta. Liggur afstaða Framsóknarflokksins til þeirrar virkjunar fyrir þannig að það sé klárt að flokkurinn, sem nú er í sterkari stöðu en á síðasta kjörtímabili í ríkisstjórn, hafi afl til að ýta þessu máli áfram? Ástæðan fyrir að ég spyr að þessu er að hv. þingmaður benti réttilega á að einfalda þyrfti margt í regluverkinu til að verkefni sem þetta kæmist áfram. Nú er Framsóknarflokkurinn búinn að vera í ríkisstjórn í undanfarin fjögur ár og áfram núna. Er eitthvað sem flokkurinn gerði á síðasta kjörtímabili sem er ætlað til að auka okkur bjartsýni á að það takist núna á þessu kjörtímabili sem var svo illa mögulegt á liðnu kjörtímabili að okkur tókst ekki einu sinni að afgreiða 3. áfanga rammaáætlunar?