152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

hringtenging rafmagns á Vestfjörðum.

171. mál
[17:06]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Framsóknarflokkurinn hefur næga orku til að fara í verkefnið. Ég vil benda á það að á síðasta kjörtímabili, talandi um smávirkjanirnar, fór þáverandi iðnaðarráðherra í það að einfalda nokkuð regluverk í kringum þær þó að mér hafi ekki fundist nægilega að gert með nokkrum hætti. En ég held að vilji Framsóknarflokksins sé allur til að bæta og auka raforkuöryggi á Vestfjörðum sem og annars staðar sem við þurfum í raun að fara í. Ef hv. þingmaður les yfir stjórnarsáttmálann er náttúrlega mikil áhersla lögð á orkumálin. Við erum að fara í orkuskipti og til þess þurfum við að bæta raforkukerfi um allt land. Þannig að vilji stjórnvalda í þessum málum er fyrir hendi og virkjun í Vatnsfirði er á svæði, þ.e. þar sem sem þessi virkjun er möguleg, er vissulega í friðlandi. Það friðland er náttúrlega bundið ákveðnum lögum um hvernig framkvæmdum skuli háttað. En ég held að það sé alveg hægt að vinna það þannig að hægt sé að komast að þeirri niðurstöðu — þetta er virkjun sem er 20 MW — að hægt væri að koma því í kring að framkvæma þar án þess að ganga svo á friðlandið að okkur geti ekki samist um að komast að þeirri niðurstöðu. Ég held að það sé mjög mikilvægt.