152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

hringtenging rafmagns á Vestfjörðum.

171. mál
[17:08]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Kannski ég bæti við spurningu út frá virkjunaráformum í Vatnsfirðinum. Í því ríkisstjórnarsamstarfi sem Framsóknarflokkurinn er núna, telur hv. þingmaður að sátt sé möguleg um virkjun í Vatnsfirði, í samstarfi þar sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð er einn þriggja stjórnarflokka og fer með forsætisráðuneytið? Ég segi þetta í því ljósi að þegar þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er skoðuð er rammaáætlunin svokallaða, nýtingaráætlunin, áætluð til framlagningar á síðasta framlagningardegi vorþingsins sem manni finnst ekki benda til að mikil eftirfylgni sé hvað það varðar að koma virkjunaráformum áfram. Kann hv. þingmaður einhverja skýringu á því að rammaáætlunin, sem hefur dagað uppi þrisvar sinnum, er ekki áætluð til framlagningar fyrr en á síðasta framlagningardegi þessa þings? Það finnst mér ekki benda til að mikil meining sé á bak við það að klára. Hin spurningin er þá hvort hv. þingmaður telji líklegt að í ríkisstjórnarsamstarfi með Vinstri grænum takist sátt um að virkja í Vatnsfirði.