152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

almenn hegningarlög.

202. mál
[17:39]
Horfa

Flm. (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ítarlega ræðu með mjög gagnlegum upplýsingum, sem ég náði auðvitað ekki öllum úr sætinu en ég mun kynna mér ræðuna þegar hún birtist á vef Alþingis. Mig langaði að spyrja, af því að það kom ekki beinlínis fram hjá hv. þingmanni þrátt fyrir að hann væri jákvæður gagnvart úrræðinu, hvort hann sé sammála mér um það skref sem þetta mál snýst um, að núverandi kerfi sé afar ógagnsætt; að ákvarðanir eru ekki birtar eins og dómar og dómþolar geta ekki áttað sig á því hvort þeir hafi notið jafnræðis á við aðra í svipaðri stöðu vegna þess að það er stjórnvaldið sem tekur ákvörðun um þetta. Þess vegna geta verjendur heldur ekki upplýst skjólstæðinga sína nægilega vel um hvers sé að vænta við meðferð máls eða byggt málatilbúnaðinn upp með þetta úrræði í huga. Óskilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir mjög unga brotaþola hlýtur að vera algjört neyðarúrræði og þess vegna getur það ítrekað gerst með núverandi kerfi að dómarar dæmi fólk ítrekað í skilorðsbundna dóma sem safnast upp. Á endanum getur það náttúrlega haft alvarlegar afleiðingar. Er hann ekki sammála mér að þetta ætti að vera eins og á Norðurlöndunum, í Noregi, að dómarar hafi heimild til að gera þetta í staðinn fyrir að þetta sé í höndunum á Fangelsismálastofnun?