almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er mjög hlynntur því að við skoðum framkvæmd þessara mála í Noregi. Ég held að það hafi bara sýnt sig, eins og ég nefndi í minni ræðu, að t.d. hvað samfélagsþjónustuna varðar þá hefur hún skilað góðum árangri. Já, ég tel tvímælalaust að við eigum að horfa til norsks réttar hvað þetta varðar og er sammála hv. þingmanni þegar kemur að gagnsæi. Það verður að ríkja gagnsæi um þennan málaflokk og hv. þingmaður rakti það mjög vel í sinni ræðu. Að dómarar geti fengið þessa heimild held ég að sé af hinu góða. Ég er þeirrar skoðunar og ég hef haft sérstakan áhuga á þessu úrræði, þ.e. samfélagsþjónustu, það tengdist inn í nám mitt á sínum tíma í háskólanum. Markmiðið hlýtur alltaf að vera það sama hjá okkur öllum, þ.e. að stuðla að því að einstaklingarnir komi úr betrunarvist, ef ég má orða það þannig, út í samfélagið sem betri einstaklingar. Það hlýtur að vera markmið okkar allra. Þetta úrræði hefur sýnt að það skilar betri árangri en hefðbundin fangelsisvist eða óskilorðsbundnir dómar. Þá held ég að sé svo sannarlega mikilvægt að fara vandlega yfir hvort við getum ekki bætt þessa hluti hér hjá okkur með tilliti til þessa. Eins og hv. þingmaður nefndi réttilega þá held ég að sé bara mjög gott mál að horfa til Noregs því að það hefur sýnt sig að sú framkvæmd hefur skilað góðum árangri.