atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og hún hefur góða þekkingu á þessum málaflokki, ég held að það hafi komið hér greinilega fram. Mig langaði að spyrja hv. þingmann að því hvort sú breyting sem hún leggur til á framkvæmdinni sé viðhöfð með sama hætti á Norðurlöndunum, þ.e. að veita atvinnuleyfi til þessa hóps sem sækir um dvalarleyfi, þeirra sem veitt er dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða og svo sérstakra tengsla. Eins og hv. þingmaður nefndi réttilega þá eru svipuð ákvæði í frumvarpi sem boðað hefur verið af hálfu dómsmálaráðherra. Þá spyr maður sig hvort það sé í raun og veru þörf fyrir þetta frumvarp.
Mig langaði líka að koma aðeins inn á eitt í þessu sambandi. Nú áttum við fund fyrir skömmu með Útlendingastofnun þar sem verið var að ræða fjölda umsókna hælisleitenda og þeirra sem sækja um dvalarleyfi hér á landi. Þeim hefur fjölgað umtalsvert á mjög skömmum tíma og Útlendingastofnun er búin að gera spá fram í tímann um hvað umsóknum geti fjölgað mikið. Þeim getur fjölgað um allt að helming á mjög skömmum tíma og við erum að sjá kannski fram á um 1.500 umsóknir árlega bara innan tveggja, þriggja ára, sem getur þýtt og mun þýða í raun og veru tvöföldun á fjárveitingum til málaflokksins, sem eru 3 milljarðar í dag, gæti farið upp í 7 milljarða kr. á ári, sem er orðin verulega há upphæð. Munu þessar breytingar hafa áhrif á það hvort það verði meiri áhugi á því að koma hingað og sækja um dvalarleyfi?