atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Varðandi stöðuna á Norðurlöndunum verð ég einfaldlega að játa að ég hef ekki hugmynd um það. Ég veit ekki hvort slíkum dvalarleyfum fylgja atvinnuleyfi þar, en mér þætti það ekki ólíklegt miðað við það að svona almennt í frumvörpum sem lögð eru til af hálfu stjórnvalda þá hefur slíkt verið kannað og lögð áhersla á að við fylgjum Norðurlöndunum í ýmsu, en ég þekki það persónulega ekki, því miður. Þetta er mjög réttmæt spurning.
Hvers vegna er ég að leggja fram frumvarp til laga sem verður í rauninni lagt fram fljótlega? Eins og ég sagði hér áðan, hefur það mál verið lagt fram ítrekað og hefur ekki náð fram að ganga. Það er einfaldlega vegna þess að það er gríðarlega sterk andstaða við önnur ákvæði í því frumvarpi og hún fer vaxandi frekar en minnkandi. Ég á því ekkert endilega von á því að það nái fram að ganga á næstunni. Hins vegar eru þetta brýnar breytingar og þær eru öllum í hag. Staðan núna er það sem mætti kalla „lose-lose“, þar sem allir tapa, þannig að ég tel þetta vera eitthvað sem sátt ríkir um og við ættum í rauninni að kippa í liðinn og ræða hitt síðar. Varðandi það hvort þetta muni virka eins og það sem stundum er kallað á ensku „pull factor“, sem sagt einhver breyta sem togar í fólk til að koma, þá hef ég ekki trú á því, einfaldlega vegna þess að það kemur fólki gríðarlega á óvart þegar það fær leyfi til dvalar hérna að það megi ekki vinna. Ég held að fólk gangi almennt út frá því að ef það færi á annað borð leyfi til dvalar þá hafi það möguleika á því að sækja sér vinnu þannig að ég á ekki von á því að þetta hafi nein áhrif á þá ákvörðun (Forseti hringir.) fólks að koma hingað og óska eftir því að fá dvelja hér á landi. (Forseti hringir.) Jafnvel mætti segja við þá sem halda því fram að einstaklingar (Forseti hringir.) komi hingað til lands til að sækja félagslegar bætur eða annað slíkt að (Forseti hringir.) þeir eru þá ekki að bíða eftir þessu.
(Forseti (LínS): Forseti minnir þingmenn á að virða ræðutíma og að þingmálið er íslenska.)