152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

atvinnuréttindi útlendinga.

201. mál
[18:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Nú er það þannig að í þessum málaflokki er verið að herða reglur á Norðurlöndum, í Danmörku sem dæmi, og þess vegna væri afar fróðlegt að vita það hvort ákvæði sem það, sem lagt er upp með í þessu frumvarpi, sé að finna í þeirri framkvæmd sem er í þessum málaflokki t.d. í Danmörku. Það er annað sem ég hefði áhuga á að fá svör við frá hv. þingmanni, þ.e. hvort hún hafi kynnt sér það hvort þetta ákvæði geti haft t.d. áhrif á atvinnustigið hér á landi. Nú gengum við í gegnum mjög mikið atvinnuleysi í veirufaraldrinum og það fór alveg upp í 25% t.d. á Suðurnesjum. Atvinnuleysi í Evrópu er mismunandi eftir löndum en það er t.d. 14% á Spáni. Þá spyr maður sig hvort þetta, að hér verði auðveldara fyrir þá að fá atvinnuleyfi sem eru að sækja hér um dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, geti haft áhrif á atvinnustigið hér á landi. Ég held að þetta sé eitthvað sem við verðum aðeins að horfa í.

Svo væri fróðlegt að heyra hvort hv. þingmaður viti hvað þetta er stór hópur af fólki sem hér um ræðir, sem er verið að veita dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla, því að auðvitað hefur það líka áhrif. En í heildina þá hefur það verið áhersla í málflutningi mínum að við eigum að horfa til Norðurlanda í framkvæmd. Þar eru menn að herða reglurnar vegna þess að hlutirnir eru komnir þangað (Forseti hringir.) að í óefni stefnir enda alveg ljóst (Forseti hringir.) að það er ekki hægt að veita öllum þeim milljónum manna leyfi sem leita betra lífsviðurværis í öðrum löndum.