152. löggjafarþing — 27. fundur,  26. jan. 2022.

atvinnuréttindi útlendinga.

201. mál
[18:11]
Horfa

Flm. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir spurningarnar. Ég vil árétta það að þær breytingar sem hér eru lagðar til hafa engin áhrif á réttindi fólks til þess að fá dvalarleyfi hér á landi þannig að það er ekkert sem bendir til þess að þetta muni hafa nein áhrif á þann fjölda sem hér fær dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ég fletti því snöggvast upp á meðan hv. þingmaður var að bera upp spurningu sína og það voru 15 manns árið 2021 sem veitt var dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ég er því miður ekki með tölur yfir þá sem var veitt dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla, en það eru sárafáir einstaklingar samkvæmt minni reynslu.

Varðandi stöðuna á vinnumarkaði þá er þetta sannarlega ástæðan fyrir því að atvinnuleyfi fylgir ekki öllum dvalarleyfum á Íslandi sjálfkrafa. Höfundar þeirra reglna hafa í upphafi kannski haft áhyggjur af því að ekki væri næg atvinna fyrir allt það fólk sem fær að dvelja hér. En þá vil ég annars vegar árétta að þetta breytir því ekki að þessir einstaklingar fái að dvelja hér og hins vegar, ef þau fá ekki að vinna fyrir sér og sjá fyrir sér sjálf, þá munu þau þurfa að þiggja fjármuni úr ríkissjóði til að sjá sér farborða, þar sem hér er sem betur fer ekki enn þá viðhaft að setja fólk algerlega út á guð og gaddinn þegar það getur ekki unnið, þó að það megi svo sem deila um þau úrræði sem eru í boði fyrir það fólk.

Þá vil ég nefna að samkvæmt áætlun ferðamálaráðs, bara til að nefna mat annarra á stöðunni þar sem það eru aðrir sérfróðari en ég um þessi mál, þá vantar hér um 8.000 einstaklinga til þess að fylla þær stöður sem þarf að fylla á næstunni. Ef við gerum ráð fyrir 15 manns á ári þá held ég að við þyrftum kannski að opna dyrnar meira til þess að ná upp í þann fjölda.