152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

um fundarstjórn.

[10:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég kom hér upp í pontu í fyrradag og óskaði eftir atbeina forseta við að standa vörð um virðingu stjórnvalda gagnvart Alþingi í tengslum við umsóknir um ríkisborgararétt sem beint er til þingsins. Í grein á Vísi í gær, sem hæstv. innanríkisráðherra skrifaði undir titlinum „Ríkisborgararéttur og Alþingi“, talaði ráðherra af miklum hroka gagnvart þinginu. Þar er tvennu ruglað saman, annars vegar beiðninni sem Alþingi hefur beint til stjórnvalda um afhendingu tiltekinna gagna og upplýsinga á grundvelli laga sem stjórnvöldum ber að sinna og hins vegar ferli við afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt, sem sannarlega er í vinnslu í allsherjar- og menntamálanefnd. Í greininni tekur ráðherra af allan vafa um það að hann telur það í sínum verkahring að stýra vinnu þingsins.

Ég biðla því til forseta þingsins að beita sér af öllum þunga til að standa vörð um virðingu ríkisstjórnarinnar gagnvart Alþingi.