um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég kem hér upp til að taka undir orð hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Þessi grein hæstv. innanríkisráðherra er með öllu forkastanleg því að svo virðist sem hæstv. ráðherra átti sig ekki á innihaldi laga í málaflokknum sem hann stýrir. Hann leyfir sér í þessu máli að tala um tvöfalt kerfi þar sem jafnræði ríkir ekki, að það séu útvaldir sem fái hér ríkisborgararétt með lögum. Ég hvet hæstv. ráðherra sem er hér í salnum til þess að kynna sér betur bakgrunn þessara laga og ástæður þess að málið er með þessum hætti, en tek jafnframt undir þá ósk að forseti gangi í lið með þinginu og beiti sér fyrir því að framkvæmdarvaldið og ráðherrar virði skýr lagaboð um störf Alþingis.