afgreiðsla ríkisborgararéttar.
Herra forseti. Einu sinni í gamla daga, haustið 2018, sagði dómsmálaráðuneytið að heppilegast væri að endurskoðun fyrirkomulags um veitingu ríkisborgararéttar yrði unnin í góðu samstarfi ráðuneytisins, Útlendingastofnunar og allsherjar- og menntamálanefndar. Nú kemur fram í grein dómsmálaráðherra að ráðuneytið hafi tilkynnt Alþingi einhliða um breytingar á verklagi sem þau hafa ítrekað reynt að gera í trássi við vilja allsherjar- og menntamálanefndar. Og hvenær var það gert? Það var gert í júní á síðasta ári þegar þingið er í hléi. Allsherjar- og menntamálanefnd kemur ekki saman fyrr en næstum hálfu ári síðar og þá er allt orðið of seint. Þá er Útlendingastofnun búin að slugsa nógu lengi til að ekki sé hægt að afgreiða umsóknir þeirra rúmlega 100 einstaklinga sem borguðu 25.000 hver til að fá afgreiðslu hennar í samræmi við lög. Þessi lítilsvirðing ráðherra, (Forseti hringir.) sem birtist í grein hans á Vísi, er eitthvað sem ég vænti að forseti taki upp af mikilli alvöru við ráðherrann. (Forseti hringir.) Og það að hann telji sig geta tilkynnt einhliða hvernig Alþingi eigi að starfa bendir til þess (Forseti hringir.) að hann þurfi kennslustund í stjórnsýslu.