afgreiðsla ríkisborgararéttar.
Herra forseti. Mig langar aðeins að nota tækifærið hérna og lýsa yfir áhyggjum af því að mér þykir þessari ríkisstjórn, stjórnarflokkunum þremur, vera orðið fullt tamt að feta hér það sem við höfum áður talið ótroðnar slóðir, þ.e. að efnisatriði einstakra mála og afstaða einstakra ráðherra, jafnvel ríkisstjórnarinnar, til þeirra stýri því hvort lögbundin upplýsingagjöf ráðuneyta eða undirstofnana þeirra til Alþingis sé virt. Ég ætla bara að hvetja forseta til að grípa inn í og standa með þinginu og almenningi í þessum málum.