152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

afgreiðsla ríkisborgararéttar.

[10:45]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það er grafalvarlegt þegar ráðherra lætur persónulega skoðun sína koma í veg fyrir að stofnanir ríkisins fari að lögum. Það er alveg skýrt í lögum um veitingu ríkisborgararéttar að Alþingi skal veita ríkisborgararétt. Aðstæður fólks bjaga jafnræði. Það er þannig að þegar ríkisborgararétturinn er veittur samkvæmt stjórnvaldsákvörðun þá þarf að uppfylla öll lagaskilyrði en þess vegna, og einmitt þess vegna, er Alþingi veitt þessi undanþáguheimild fyrir þá einstaklinga sem geta ekki uppfyllt öll lagaskilyrðin. Ég hvet hæstv. ráðherra til að kynna sér aðstæður fólks sem er í neyð, sem hefur jafnvel búið hér frá fæðingu, sem hefur jafnvel búið hér áratugum saman en getur ekki uppfyllt öll lagaskilyrði, t.d. vegna þess að það er ekki læst, vegna þess að það getur ekki lært annað tungumál, vegna þess að það getur ekki lært að lesa letur eins og við notum hér eða hreinlega vegna heilsufarsástæðna. (Forseti hringir.) Þess vegna getur það ekki uppfyllt lagaskilyrði til að fá ríkisborgararétt samkvæmt stjórnvaldsákvörðun. Þetta er undanþáguheimild (Forseti hringir.) sem Alþingi verður að hafa einmitt vegna skoðana eins og ráðherra hefur nú sýnt.