afgreiðsla ríkisborgararéttar.
Virðulegi forseti. Ég vil blanda mér í þessa umræðu til að taka undir og leggja áherslu á að samskipti Alþingis og framkvæmdarvaldsins fari fram samkvæmt lögum og það sé virðing á báða bóga. Ég vil líka koma því að að ég set mitt traust á hæstv. formann allsherjar- og menntamálanefndar, Bryndísi Haraldsdóttur, og hæstv. forseta varðandi það að koma á eðlilegum samskiptum þannig að afgreiðsla þeirra umsókna sem nú liggja fyrir geti farið fram.
Ég vil samt sem áður líka taka undir það að mikilvægt er að vera stöðugt að vakta og endurskoða fyrirkomulagið og það þarf að gerast í samstarfi allsherjar- og menntamálanefndar og ráðuneytis.