152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

afgreiðsla ríkisborgararéttar.

[10:48]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er nú ýmis dellan í Vísisgrein hæstv. ráðherra sem mætti nefna hér. En mig langar að nefna sérstaklega þá staðhæfingu að almennar umsóknir um ríkisborgararétt lendi í bið vegna þeirra sem sækja um til Alþingis. Allt þetta fólk greiðir fyrir afgreiðslu Útlendingastofnunar í samræmi við gjaldskrá sem á að endurspegla þá vinnu sem felst í afgreiðslunni. Annaðhvort er gjaldskráin röng, sem er á ábyrgð ráðherra, eða að fjármunirnir skila sér ekki til Útlendingastofnunar, í starfsliðið, til að vinna þessar umsóknir. Að kenna fólkinu sem sækir um til Alþingis um tafir á skrifstofu Útlendingastofnun — þetta er bara þvæla. Svo tek ég sérstaklega eftir því að hér mæta fulltrúar samstarfsflokkanna upp í ræðustól. Fulltrúi Vinstri grænna gagnrýnir ráðherrann berum orðum. Fulltrúi Framsóknar lýsir fullu trausti á tveimur Sjálfstæðismönnum. Hvorugur þeirra er ráðherrann. Hvorugur Sjálfstæðismaðurinn sem hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir treystir í þessu máli er ráðherra málaflokksins.

Herra forseti. Er komið upp vantraust í stjórnarliðinu á innanríkisráðherra?