afgreiðsla ríkisborgararéttar.
Herra forseti. Ég vil við þetta tilefni rifja upp að það er ekki nýtt vandamál, fyrirkomulagið sem viðhaft er í þessum efnum. Sjálfur hef ég í gegnum allt liðið kjörtímabil setið hjá við afgreiðslu ríkisborgararéttar, ekki vegna þess að ég hefði persónulega út á þá sem hann hlotnaðist að setja heldur þótti mér það fyrirkomulag sem viðhaft hefur verið mjög brogað, svo að vægt sé til orða tekið, og gerði ítrekað tillögu um að það yrði uppfært og lagfært. Alltaf var tekið vel undir það en svo gerist ekki neitt. Það gerist ekki neitt fyrr en liðið kjörtímabil er búið, þá gerist þetta með þeim hætti sem hér hefur verið lýst. Ég er hræddur um að við séum að fara að sigla inn í annað kjörtímabil undir samstarfi þessara sömu flokka þar sem mál eru þæfð og svæfð þar til pólitíkusarnir eru komnir í skjól eins og í þessu máli síðastliðið sumar þegar búið var að fresta þingi og fólk komið í undirbúning kosninga. Ég vona bara að sú hvatning (Forseti hringir.) sem hér hefur komið fram til formanns hv. allsherjar- og menntamálanefndar að uppfæra þetta verklag verði til einhvers gagns (Forseti hringir.) því að undanfarin fjögur ár urðu til lítils í þeim efnum þar til ráðuneytið sjálft steig inn í málið.