viðmið skaðabótalaga.
Virðulegur forseti. Skaðabótalög voru sett til þess að fólk sem verður fyrir skaða í umferðarslysum eða öðrum slysum fái tjón sitt að fullu bætt. Skaðabótalögin hafa að geyma ákvæði um lágmarksviðmið árslauna. Þessi viðmið skaðabótalaga breytast ár frá ári í samræmi við vísitölu neysluverðs, já, vísitölu neysluverðs. Það verður að teljast furðulegt að nota þann mælikvarða til að uppreikna launaviðmið þegar hægt væri að nýta annan mun nákvæmari mælikvarða, launavísitölu. Eftir því sem laun hafa hækkað umfram verðlag hefur dregið úr þeirri vernd sem skaðabótalögin veita fólki sem verður fyrir líkamstjóni en hefur ekki stundað fulla vinnu á síðustu þremur árum fyrir slysdag. Þetta eru m.a. einstaklingar sem ekki hafa unnið fulla vinnu, heimavinnandi einstaklingar, eldri borgarar, námsmenn, öryrkjar. Þessi hópar njóta því ekki sömu verndar nú í skaðabótalögum og var tryggð þeim við gildistöku.
Fyrirrennari hæstv. innanríkisráðherra í starfi sagði í þessum ræðustól að hún ætlaði að endurskoða skaðabótalögin en sagði svo seinna að hún ætlaði ekki að endurskoða skaðabótalögin. Ég spyr því innanríkisráðherra: Ætlar hann að taka skaðabótalögin til endurskoðunar? Hyggst ráðherra gera breytingar á þessum viðmiðum og hyggst ráðherra einnig taka til skoðunar gjafsókn? Eins og staðan er í dag er fólk í gjörólíkri stöðu, annars vegar slasaður einstaklingur sem hefur kannski verið frá vinnu í tvö til þrjú ár áður en hann reynir að koma máli sínu til dómstóla og hins vegar fjársterk tryggingafélög sem vaða í peningum og græða sem aldrei fyrr. Mun hæstv. ráðherra sjá til þess að það verði uppfært samkvæmt launavísitölu þannig að einstaklingar sem verða fyrir tjóni fái tjón sitt að fullu bætt?