152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

viðmið skaðabótalaga.

[10:53]
Horfa

innanríkisráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður fjallar hér um mál sem er mjög mikilvægt og ég þakka honum fyrir þessa fyrirspurn. Þessi mál hafa, í þann stutta tíma sem ég hef verið í ráðuneytinu, ekki komið til umræðu, en mér finnst sjálfsagt að skoða þessar ábendingar þingmannsins og sjá hvort hér sé ástæða til að bæta úr. Almennt er það nú þannig eftir þeim upplýsingum sem maður hefur haft, að heldur hafa bætur vegna slysa verið að hækka á undanförnum árum þannig að að menn hafa verið að fá bætur vegna tjóns sem þeir hafa orðið fyrir sem eru hærri en þekktust áður. Það hefur verið þróunin. En hvar þetta stendur nákvæmlega í dag mun ég taka með mér og skoða og koma þá upplýsingum til hv. þingmanns um hver viðbrögðin verða. Það er bara sjálfsagt að skoða þetta mál vel.