152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

orkumál.

[10:57]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mig langar að eiga orðastað við hæstv. innviðaráðherra um stærstu áskoranir í innviðum sem við stöndum frammi fyrir — ég held við getum verið sammála um það — en það eru orkumálin. Það er ekki bara þegar kemur að getu okkar til að byggja upp gott samfélag til framtíðar um land allt heldur líka þegar kemur að baráttunni við loftslagsvána. Ríkisstjórnin hefur það markmið að árið 2040 verði Íslendingar óháðir jarðefnaeldsneyti fyrstir allra þjóða og er það liður í baráttunni við loftslagsvána. Við vitum að þrátt fyrir að 18 ár séu í það mun þetta ekki nást ef við hefjum ekki undirbúning strax. Spor eða öllu heldur sporleysi ríkisstjórnarinnar í þessum málum hræða vegna þess að við höfum öll orðið vitni að því að innbyrðiságreiningur hefur verið um það hvaða leiðir skuli fara. Er þörf á frekari orku, hvernig á að nálgast hana o.s.frv.? Í stjórnarsáttmála er talað um orkuskiptin og mikil áhersla lögð á þau. Ég hef hug á að heyra skoðanir hæstv. ráðherra á því og biðja hann helst að fullvissa mig um það að hljóð og mynd fari saman í þessu máli. Forstjóri Landsvirkjunar sagði nýlega að við ættum ekki næga orku, að það þyrfti að virkja. Um það er ágreiningur. Við treystum á vatnsaflsvirkjanirnar í dag og þegar um er að ræða hundrað prósent náttúrulega orku erum við háð duttlungum náttúrunnar í þessu.

Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvert er plan ríkisstjórnarinnar í þessum málum? Hvaða leiðir sér hæstv. ráðherra til að koma í veg fyrir orkuskort, sem blasir við, og til að tryggja að við náum þessum mikilvægu markmiðum okkar? Er einhugur innan ríkisstjórnarinnar um þær leiðir sem hæstv. ráðherra innviðamála sér helst færar í þessum málum?