orkumál og stofnun þjóðgarðs.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Það er gott að það komi fram hér að öll friðlýst svæði innan miðhálendislínu verði ekki skilyrðislaust hluti af þessum þjóðgarði. Það skiptir máli. Hæstv. ráðherra kom inn á það að andi stjórnarsáttmálans segði, og ég get alveg tekið undir, það var minn skilningur á textanum, að vinnsla óendurnýjanlegra orkugjafa félli undir takmörkunarákvæðið í stjórnarsáttmálanum. Er það að ekki verði gefin út nein leyfi til vinnslu eða rannsókna í tengslum við jarðgas í efnahagslögsögunni þá ekki dálítið sérstakt í ljósi þess að nú er Evrópusambandið, sem sumir hérna inni á þingi horfa mikið til, að vinna að því að skilgreina jarðgas sem grænan orkugjafa?