niðurstaða Félagsdóms í máli flugfreyja.
Herra forseti. Markmiðið með uppsagnaleiðinni var að koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækja en ekki að skerða réttindi launafólks. Tillaga okkar í Samfylkingunni, um að koma í veg fyrir að það gerðist, var felld af hæstv. forsætisráðherra, fleiri ráðherrum og stjórnarþingmönnum sem sendu með því skilaboð um vilja sinn í málinu. Það er staðreynd málsins og stjórnvöld verða að axla ábyrgð á því. Ríkið greiddi út rúma 12 milljarða kr. til fyrirtækja til að aðstoða þau við að segja upp fólki. Það voru auðvitað fleiri fyrirtæki en Icelandair. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún muni beita sér fyrir því að greint verði frá því hvernig staðið var að endurráðningum hjá öðrum fyrirtækjum sem fengu ríkisstyrkinn og hvort hún telji ekki að stjórnvöld eigi að gera skýlausa kröfu til fyrirtækja sem njóta ríkisaðstoðar um að þau sýni samfélagslega ábyrgð og virði rétt launafólks. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)