niðurstaða Félagsdóms í máli flugfreyja.
Herra forseti. Þessi dómur á sérstaklega við um flugfreyjur og ég veit að í þeirra samningum eru sérstök ákvæði sem tengjast starfsaldri þannig að það er auðvitað eitthvað sem við þurfum að skoða. Um það hvort dómur Félagsdóms — og ég ætla bara að segja það hér að ég er ekki búin að rýna hann nákvæmlega — hafi fordæmisgildi hvað varðar aðra geira vinnumarkaðarins ætla ég ekki að lýsa neinu yfir því að ég hef ekki farið yfir dóminn. Ég vænti þess að vinnumarkaðsráðherra hafi gert það. En ég ítreka það sem ég sagði að við eigum að taka þennan dóm alvarlega og draga af honum lærdóm.