sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þetta tækifæri, að fá að eiga orðastað við hæstv. heilbrigðisráðherra um sóttvarnir. Þetta er í sjálfu sér alveg ágætistímasetning til að gera það því að við horfum auðvitað upp það og hljótum flest að vera orðin þeirrar skoðunar að það sé orðið tímabært að endurskoða nálgun okkar og fara að aflétta þeim hörðu takmörkunum sem hafa verið í samfélaginu um nokkurt skeið.
Áður en ég kem að stöðunni í faraldrinum og því sem um það er að segja myndi ég vilja nefna að eitt af því sem við höfum lagt til grundvallar í þessari umræðu og Viðreisn hefur talað mikið um undanfarin misseri í þessum faraldri er aðkoma þingsins. Við höfum verið þeirrar skoðunar að aðkoma þingsins þyrfti að vera meiri en hún hefur verið. Við leggjum í dag fram tillögu til breytingar á sóttvarnalögum. Þetta er tillaga sem við höfum verið að vinna að að undanförnu og gerir það að verkum að ráðherra þarf að leggja þingsályktunartillögu fyrir þingið til að staðfesta þær ráðstafanir sem hann hefur þegar gripið til. Þetta hugsum við til þess að þingið hafi aðkomu að málum ef faraldur dregst á langinn. Ekki er miðað við að þetta þurfi að vera verklag í upphafi faraldurs og við viljum leggja á það mikla áherslu að þegar við skoðum tillöguna hljótum við auðvitað að líta til þess að þótt vel horfi núna með framhaldið getur eitthvað gerst og faraldurinn haldi áfram eða að í framtíðinni komi upp nýir faraldrar. Þessa breytingartillögu leggjum við fram í dag og mun hún liggja frammi fyrir þingmenn til að skoða. Hún gerir það að verkum að okkar mati að aðkoma þingsins er tryggð, ekki bara með samtali heldur með því að þingið tekur þá raunverulega ákvarðanir með hæstv. ríkisstjórn hverju sinni þegar kemur að því að takmarka réttindi fólks vegna faraldurs sem geisar í samfélaginu.
Þá að stöðunni eins og hún er í dag. En áður en ég kem að því myndi ég reyndar vilja spyrja hæstv. ráðherra hvort hann taki ekki undir það að þingið hafi aðkomu með þessum hætti að þessum málum. Mig langar líka að nefna að hæstv. fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, viðraði einmitt sams konar hugmynd í þinginu fyrr í vikunni, og spyr þá hvort hæstv. heilbrigðisráðherra taki ekki undir þetta.
En þá að ástandinu. Þær hörðu takmarkanir sem eru í gangi í samfélaginu í dag voru rökstuddar með spá um þróun faraldursins og það er algerlega augljóst að við erum á miklu betri stað en bjartsýnasta spáin gerði ráð fyrir. Fyrir um hálfu ári var hlutfall þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús vegna sýkingar 2,5%. Þá var delta-afbrigðið allsráðandi. Þá var auðvitað efni til að hugleiða vel og hafa takmarkanir í gangi í samfélaginu. Nú hefur það verið þannig í heilan mánuð að það greinast upp undir 1.500 smit á dag, og þá er ég bara að tala um smit sem greinast við sýnatöku. Engu að síður hafa yfirleitt bara verið um þrír á gjörgæslu, sem er auðvitað alvarlegt í sjálfu sér en miklu minna en við bjuggumst við, og u.þ.b. 0,2% hafa verið að leggjast inn á spítala.
Síðan fáum við viðbótarupplýsingar í gær, og í fyrradag reyndar líka, um að mun fleiri séu að sýkjast en við grípum í sýnatöku, talað er um allt að tvöfalt eða þrefalt fleiri. Það þýðir að hlutfall þeirra sem leggst inn á spítala af þeim sem fá veiruna er ekki 0,2% heldur umtalsvert lægra. Við þær aðstæður er algerlega óverjandi að viðhalda svona hörðum samkomutakmörkunum eins og eru í gildi núna.
Verið er að boða afléttingaráætlun í ríkisstjórn á morgun. Við höfum ekki enn séð efnisatriði hennar en þó liggur alveg fyrir afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins um það að lagaskilyrði og forsendur fyrir þeim hörðu takmörkunum sem enn eru í gildi séu brostnar. Ef ekki á að létta þeim strax af þjóðinni, af atvinnufyrirtækjunum og fólki sem er í fyrirtækjarekstri, menningarlífinu og veitingageiranum þá er sú spurning áleitin hvort hæstv. ríkisstjórn sé í raun og veru að viðhalda ástandi sem er ekkert annað en lögbrot og brot á grundvallarréttindum fólks. Staðan í faraldrinum er allt önnur en hún hefur verið hingað til. Þetta nýja afbrigði gerbreytir stöðunni.
Ég vil spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hann sé ekki sammála því mati hæstv. fjármálaráðherra að það þurfi að aflétta strax og hvort það að ætla sér að bíða — yfirlýsing hæstv. fjármálaráðherra kom á mánudaginn — þangað til í næstu viku (Forseti hringir.) sé þá ekki einhvers konar framlenging á lögbroti og forsendubresti fyrir þeim ákvörðunum sem teknar voru.