152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.

[11:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að setja þessa umræðu á dagskrá um sóttvarnaráðstafanir, stöðu og framgöngu okkar í faraldrinum og heilbrigðiskerfisins. Ég vil þó segja í upphafi að mér finnst það eilítið sérstakt samhengi, og kannski fullmikil einföldun, að þung staða spítalans sé helsta hindrun þess að við förum varlega og setjum okkur samkomutakmarkanir, að spítalinn standi einhvern veginn í vegi fyrir því að við njótum fullra mannréttinda. Mér finnst það í það minnsta fulldjúpt í árinni tekið. Þá vil ég vísa til þess að aðrar þjóðir hafa farið svipaðar leiðir og þetta verður allt að vinna saman.

Við höfum beitt samkomutakmörkunum til að útbreiðslan verði ekki of hröð, þetta þarf að vinna þannig saman. Ég vil kannski frekar stilla þessu þannig upp að við höfum getað haldið samfélaginu betur gangandi en margar aðrar þjóðir í gegnum faraldurinn fyrir útsjónarsemi, þrautseigju og úthald okkar heilbrigðiskerfis og svo samstöðu þjóðarinnar í að verjast veirunni, en við höfum öll þurft að leggja ýmislegt á okkur í þeim efnum. Ef þú spyrð þann sem hér stendur þá stöndum við auðvitað með heilbrigðiskerfinu og spítalanum. Við þurfum að grípa til margvíslegra aðgerða til að tryggja að við ráðum við stöðuna hverju sinni, bæði að taka á móti þeim sjúklingum sem þurfa að leggjast inn samhliða því að halda uppi annarri þjónustu.

Staðan er gjörbreytt, ég er sammála hv. þingmanni um það. Þess vegna erum við að boða afléttingaráætlun. En við verðum að gera það á grundvelli upplýsinga og stöðunnar hverju sinni. Ég verð að minna á að við erum enn með almannavarnir á neyðarstigi og spítalann á neyðarstigi. Þess vegna hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða til að létta undir með spítalanum. Þegar síðustu samkomutakmarkanir voru settar á fyrir tveimur vikum var óvissa um þróunina í faraldrinum. Þá voru 47 inniliggjandi á spítalanum og staðan var mjög þung. Þá gripum við til þeirra aðgerða að semja við fjölmarga aðila í einkageiranum og það hefur hjálpað verulega. Farið var í skipulagsbreytingar og greitt fyrir viðbótarvinnuframlag og eru það mjög svipaðar ráðstafanir og gerðar hafa verið annars staðar á Norðurlöndunum, í Danmörku og Svíþjóð. Þess utan höfum við fengið starfsfólk af öðrum stofnunum inn á spítalann og við höfum líka notið góðs af bakvarðasveitum og fengið björgunarsveitir í yfirsetur. Það hefur því þurft að gera ansi mikið til að mæta erfiðri stöðu. Þetta er það sem ég vildi draga fram hér.

Í öðru lagi spyr hv. þingmaður út í vinnulagið sem er viðhaft. Sóttvarnalæknir sendir ráðherra tillögur, ráðherra fer með þær fyrir ráðherranefnd og inn í ríkisstjórn og svo er það aðkoma þingsins. Ég get sagt það hér, virðulegi forseti, að ég er opinn fyrir öllum breytingum á fyrirkomulaginu og styð það ávallt að þingið hafi sem mesta aðkomu að málum eins og þessum. Hvernig það fyrirkomulag á nákvæmlega að vera — ég segi það bara hér að ég er mjög opinn í þeim efnum. Það verður spennandi að sjá hvernig umræðan verður um þau mál sem hafa verið lögð fram hér og hv. þingmaður vísar í. Ég vil einnig minna á að ég kem með heildarendurskoðun á sóttvarnalögum inn í þingið og vonandi fyrr en seinna en í þingmálaskrá er það boðað um mánaðamótin febrúar mars. Vonandi getur það tekist fyrr en starfshópur hefur verið að vinna með það mál.

Að lokum kemur hv. þingmaður inn á bólusetningar. Við höfum blessunarlega verið í góðri stöðu með þær. Það hefur hjálpað okkur í gegnum þennan faraldur. Almennt séð höfum við nýtt okkur góða stöðu bólusetninga í sóttvarnaaðgerðum. (Forseti hringir.) Þegar mikil útbreiðsla smita var farin að raska alls konar starfsemi gátu þríbólusettir verið í svokallaðri vinnusóttkví. En ég vara við því að við förum í einhvers konar aðgreiningar á grundvelli bólusetninga. Þangað myndi ég ekki vilja fara með okkar samfélag.