152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.

[11:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Stóra verkefnið sem fram undan er er að styrkja heilbrigðiskerfið þannig að það geti tekið við áföllum og ráði við áföll framtíðarinnar og það þarf að hefjast handa strax. Í faraldrinum hefur það komið skýrt í ljós að sparnaður, niðurskurður og aðhaldskröfur undanfarinna ára hafa ekki borgað sig. Veik staða heilbrigðiskerfisins þegar kórónuveirufaraldurinn skall á hefur kostað allt samfélagið mikla fjármuni og skert lífsgæði hjá sjúklingum sem hafa þurft að bíða eftir aðgerðum vegna stöðunnar. Stjórnarflokkarnir verða að gera betur en að svara ákalli eftir auknu fé til heilbrigðisþjónustu með því að setja aðhaldskröfur á stofnanir og að veita hvorki fé til að takast á við alvarlegan mönnunarvanda né veita sérstakt fjármagn til að mæta fleiri íbúum og öldrun þjóðarinnar. Við bætist að langvarandi álag á heilbrigðisstarfsfólk er farið að taka toll. Vaxandi áhyggjur eru um að kulnun í starfi vegna álags muni bætast ofan á þann mönnunarvanda sem fyrir er. Það er gert ráð fyrir því að eldra fólki hafi fjölgað um 60% árið 2040 og mannekla blasir við. Hvort tveggja hafa stjórnvöld vitað lengi en ekki gert áætlanir sem duga og vandinn vex ár frá ári. Aukningin á framlögum hefur að mestu verið kjarabætur en reksturinn í rauntölum núna er annars svipaður og hann var árið 2008. Þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu hefur hins vegar vaxið töluvert síðan þá.

Nú þegar við erum svo bjartsýn að gera ráð fyrir að faraldurinn sé alveg að ganga yfir verða stjórnvöld að hugsa út fyrir heimsfaraldurinn og neyðaraðgerðir. Þau verða að setja niður tímasettar og fjármagnaðar áætlanir um hvernig þau ætla að mæta þeim áskorunum sem fylgja því að fleira fólk þarfnast heilbrigðisþjónustu og skorti á starfsfólki til að sinna þeim sem þarfnast umönnunar og gera heilbrigðiskerfinu kleift að mæta tímabundnum áföllum.