sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu. Ég vil gera að sérstöku umtalsefni að það vekur mér hreint út sagt eilítinn ugg að það virðist þykja sjálfsagðara að takmarka frelsi fólks en að skila því. Það þykir mér vera vond meðferð á grunnréttindum okkar. Í upphafi faraldursins var talið skynsamlegt að setja nær óþekktar skorður á líf fólks vegna þess að brýn ástæða þótti til, enda var óvissan algjör og varnirnar engar. Við tókum öll þátt í því og megum vera stolt af því hvernig til tókst. Síðan hefur staðan á alla mælikvarða batnað til muna, en aðgerðirnar eru merkilega keimlíkar því sem var í byrjun faraldursins.
Forseti. Það skiptir auðvitað höfuðmáli að styðjast við gögn. En ef það er hægt að setja takmarkanir á frelsi fólks með nær engum fyrirvara þá á að vera hægt að afnema þær með sama fyrirvaraleysi þegar gögnin benda til þess að engin þörf sé á þeim.
Akkúrat hér og nú búum við enn við mjög strangar takmarkanir þótt gögnin bendi í aðra átt og hafa gert í einhvern tíma. Í upphafi faraldursins vorum við fyrirmynd í línudansi sóttvarna og þess að reyna að viðhalda eðlilegu samfélagi. Nú virðumst við dragast aftur úr með stóran hluta félags-, menningar- og atvinnulífs lokaðan á meðan nágrannaþjóðir hætta takmörkunum hver af annarri.
Forseti. Veirur verða eflaust alltaf partur af tilveru okkar. Það er mjög brýnt að við tökum alvarlega nú og til framtíðar að hvers kyns hömlum á frelsi fólks verður alltaf að mæta sem algjörri undantekningu í samræmi við lög og rökstutt yfir vafa með gögnum.
Forseti. Við verðum að undirbyggja þetta betur og skýrt til framtíðar. Annars er ekki bara hætta á að aðgerðir valdi meiri sársauka en þær eiga að vernda gegn, heldur að við missum sjónar á mikilvægum grunnréttindum.