sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Virðulegur forseti. Enginn getur legið mér á hálsi fyrir það að ég er kominn með upp í kok af þessari kórónuveiru, í orðsins fyllstu merkingu, ég veiktist af henni. Er þetta venjuleg flensa? Nei, þetta er verra. En ekki eins slæmt og ég reiknaði með. En ég hef samt áhyggjur af afleiðingunum sem veiran hefur valdið og þá sérstaklega á Landspítalanum. Við sjáum að hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild lækka nú starfshlutfall sitt, eru komnir í 50% starf. Það segir okkur að álagið er orðið gífurlegt. En álagið á eftir að verða meira eftir faraldurinn, þegar við förum að taka á biðlistunum. Við eigum að þakka fyrir að einkareknir aðilar, Klíníkin og Orkuhúsið, sérfræðingar þaðan, læknar og hjúkrunarfræðingar, komu til aðstoðar á spítalanum. Og við þurfum að fá þá aðila að borðinu þegar veiran fer að gefa eftir til að vinna á biðlistunum. Við getum ekki leyft okkur lengur að vera með hundruð, jafnvel þúsundir einstaklinga veika á biðlistum. Ég er nýbúinn að tala við einstakling sem þarf að fara í mjaðmaaðgerð. Hann er í fullri vinnu en hann er búinn að bíða mánuðum saman. Og hvað er verið að gera við hann? Jú, það er verið að gefa honum rótsterk verkjalyf. Það er lausnin. Svo koma fréttir um að allt of mikið sé verið að selja og gefa af rótsterkum verkjalyfjum. Er ekki samhengi þarna á milli? Við þurfum að kortleggja hvaða afleiðingar þetta hefur haft fyrir fólk á biðlistum, fyrir fólk sem er með krabbamein og aðra sjúkdóma. Við þurfum að taka á því.