152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.

[11:41]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Forseti. Eins og ég hef bent á þá held ég að það sé svolítið farsælt að við vöndum okkur við að skrifa söguna í kringum heimsfaraldurinn. Mér þykir mikilvægt að horfa á það að heilbrigðiskerfið okkar stóðst prófið. Það er búið að vera mikið álag, það þurfti aukinn stuðning, það þurfti meira fjármagn en við horfum til þess að við höfum staðið okkur vel í samanburði við önnur lönd, og lönd í Evrópu þar sem fólk dó unnvörpum úti á bílastæði af því að ekki var hægt að taka á móti því. Okkar staða er sú að hér hefur fólk fengið þjónustu. Þetta er áskorun, vissulega lengjast biðlistar, en heilbrigðiskerfið stóðst prófið. Mér finnst líka mikilvægt að benda á, eins og hefur komið fram, að nú eru þáttaskil. Sóttvarnaráðstafanir hafa auðvitað verið breytilegar eftir stöðu faraldursins. Markmiðið hefur alltaf verið að halda bylgjunni í skefjum til að standa vörð um líf og heilsu fólks, ekki síst okkar viðkvæmustu hópa svo að heilbrigðiskerfið okkar ráði við álagið. Nú erum við í fyrsta skipti í þessum nýja fasa þar sem þarf að skoða aðra aðferðafræði en þurft hefur að beita. Í þessum fasa, eins og áður, er verið að leggja fram afléttingaráætlun. Verið er að gera það í þriðja skipti. Í fyrsta skipti í mars 2020 og svo í apríl 2021. Þá var áætlun um afléttingu innanlandstakmarkana kynnt og sett í samráðsgátt svo að ekki er hægt að segja að ekkert samráð hafi verið haft um hlutina. Það er líka kómískt að heyra þau rök í umræðunni að einhverjir hafi nú sagt allan tímann að beita ætti þessari aðferð eða hinni. Við erum bara í allt annarri stöðu í dag. Við erum bólusett þjóð, við erum með nýtt afbrigði, við erum með færri innlagnir á gjörgæslu. Hér hefur verið farið eftir ráðleggingum okkar færustu sérfræðinga og mér finnst við hafa staðið okkur vel sem þjóð.