152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.

[11:43]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Síðustu daga hefur umræðan hér á landi færst mjög hratt í þá átt að heimsfaraldurinn verði brátt yfirstaðinn og ekki verði lengur þörf á sóttvarnaráðstöfunum. Það má þó ekki gleymast að þetta er ekki í fyrsta sinn sem við teljum okkur geta fagnað sigri og að faraldurinn sé að baki. Flest munum við þegar við töldum hjarðónæmi rétt handan við hornið síðasta sumar þegar bólusetningu fullorðinna var að ljúka. Sú spá raungerðist ekki og erum við enn með tíu manna almennt samgöngubann hálfu ári síðar. Þetta hefur verið flókið og illfyrirsjáanlegt tímabil en það er einmitt á slíkum tímum sem mikilvægt er að stjórnvöld reyni að auka fyrirsjáanleika með aðgerðum sínum. Það hefur því miður ekki alltaf tekist heldur hafa þau lengst af verið í viðbragðsstöðu og sjaldnast horft lengra fram í tímann en nokkra daga og brugðist við þróun á hverju augnabliki. Það er von mín að ríkisstjórnin dragi þann lærdóm af þessu að hún muni stórauka áætlanagerð til framtíðar um það hvernig skuli taka á ástandi sem þessu. Mál manna er vissulega að nú líti út fyrir að krísutímabilið gæti verið á enda en þá er mikilvægt að hafa í huga að afleiðingar áfalls birtast oft ekki fyrr en hættan er yfirstaðin. Það veldur mér áhyggjum hversu lítið stjórnvöld virðast líta til þessara þátta því eins og áður er varla verið að hugsa fram yfir næstu daga eða næstu tvær til þrjár vikur. Ætla yfirvöld að bíða eftir því að allar neikvæðu afleiðingarnar af sóttvarnaráðstöfunum og faraldrinum sjálfum síðustu tvö ár komi í ljós eða eru þau með einhverja áætlun?

Að lokum þykir mér mikilvægt að við drögum lærdóm af síðustu tveimur árum, lærdóm sem við munum leggja til grundvallar næst þegar við þurfum að takast á við sambærilegan faraldur eða sambærileg áföll. Ég tel að í faraldrinum hafi komið í ljós hversu auðvelt það getur verið að missa sjónar á grundvallaratriðum samfélags okkar sem skipta svo miklu máli, réttindum borgaranna. Það er bæði skiljanlegt fyrir almenning (Forseti hringir.) og fyrir stjórnvöld að vilja víkja þeim tímabundið til hliðar og kann jafnvel að vera heimilt og nauðsynlegt (Forseti hringir.) við ákveðnar aðstæður. En það á ekki að vera auðvelt og það á aldrei að vera sjálfsagt.