sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Virðulegur forseti. Ég tek undir áhyggjur af geðheilbrigðismálum í þessum Covid-faraldri. Ég varð eiginlega orðlaus þegar ég rakst á frétt þar sem talað var um, ef ég man rétt, barn sem hafði verið innilokað vegna einangrunar eða sóttkvíar í 50 daga. Þetta eru nærri tveir mánuðir sem það var innilokað. Þá fór ég hugsa: Bíddu, en aldrað fólk, hefur eitthvað verið fylgst með því hvað það hefur verið lengi innilokað? Hefur einhver spurt um það eða gert könnun á því? Eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma, fatlaðir?
Ég held að því miður sé búið að einblína svo ótrúlega mikið á Covid-19 að við gleymum öllu hinu. Ég hef það frá fyrstu hendi að við erum langt á eftir með að meðhöndla og greina krabbamein og fólk hefur orðið fyrir skaða vegna þess. Við erum langt á eftir og látum fólk veslast uppi á biðlistum, vinnandi fólk. Hvað erum við að gera bæði þeim og þjóðfélaginu með þessu? Jú, við erum að búa til færiband beint í örorku. Ég held að við þurfum, eða öllu heldur verðum að taka til óspilltra málanna og svo þurfum við líka að taka á afleiðingum Covid. Ég var á Norðurlandaráðsþingi með velferðarnefnd og þar komu fram áhyggjur Norðurlandabúa einmitt af afleiðingunum, hvernig eigi að meðhöndla afleiðingarnar, hvernig eigi að taka á þeim. Hvernig ætlum við að gera það hérna heima með enga samninga við sjúkraþjálfara, enga samninga við sérgreinalækna? Og ætlum við áfram að senda fólk út í aðgerðir, bæklunaraðgerðir til Svíþjóðar, þegar við gætum gert þrjár hérna heima fyrir eina þar úti?