sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Herra forseti. Sóttvarnaaðgerðir hafa haft mikil áhrif á land og þjóð síðustu tvö árin. Börn leika sér í sóttkvíar- og einangrunarleikjum, skrifstofur margra landsmanna hafa flust heim í stofu og skilin milli vinnu og einkalífs eru orðin óskýrari. Ungmenni hafa byrjað í menntaskólum og eru mögulega að fara að ljúka menntaskóla án þess að upplifa það að tengjast skólafélögum sínum, sækja viðburði og fleira sem tilheyrir því að vera ungur og vera í menntaskóla. Fólk hefur ekki umgengist vini sína, stundað tómstundir eins og áður og rætt hefur verið um aukinn kvíða og vanlíðan hjá unglingum landsins. Fjölskyldur hafa ekki geta heimsótt aldraða fjölskyldumeðlimi og dregið hefur úr félagsstarfi aldraðra, öryrkja og fleiri jaðarhópa. Það er mikið áhyggjuefni.
Það sýndi sig eftir hrun að geðheilsa fólks versnaði mánuðum og kannski árum eftir að komið var yfir versta hjallann. Því gæti staðan verið nákvæmlega eins núna. Ég vil ekki einu sinni hugsa það til enda ef geðheilsa þjóðarinnar versnar vegna afleiðinga samkomutakmarkana. Því tek ég undir orð hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur þegar hún ræðir um áhyggjur sínar af geðheilbrigði Íslendinga. Nú er vitað að einangrun einstaklinga styttir lífstíma fólks. Það hafa rannsóknir sýnt fram á. Ákveðnir þjóðfélagshópar eru miklu viðkvæmari fyrir því að vera einangraðir hér en aðrir. Sóttvarnaaðgerðir hafa ábyggilega haft áhrif á neikvæða félagslega einangrun í þjóðfélaginu. Því vona ég að hæstv. heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir því að huga að geðheilsu þjóðarinnar í kjölfar íþyngjandi samkomutakmarkana og félagslegra áfalla sem við höfum gengið í gegnum síðastliðin misseri. Þannig björgum við mannslífum og þannig verðum við farsælli þjóð. En það þarf að gerast og það þarf að vera plan um það og það þarf að gerast strax. Við getum ekki (Forseti hringir.) hugsað hvernig þetta verður. Hver ætlar að svara fyrir það og hver ætlar að súpa seyðið af því þegar geðheilsu þjóða hrakar enn meira?