sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Herra forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra hristi svo hausinn þegar ég reyndi að hafa eftir honum upphafsorð hans í fyrri ræðu að ég þorði ekki annað en að athuga það. Með leyfi forseta, þá byrjaði hæstv. heilbrigðisráðherra ræðu sína á því að segja:
„Ég vil þó segja í upphafi að mér finnst það eilítið sérstakt samhengi, og kannski fullmikil einföldun, að þung staða spítalans sé helsta hindrun þess að við förum varlega og setjum okkur samkomutakmarkanir, að spítalinn standi einhvern veginn í vegi fyrir því að við njótum fullra mannréttinda. Mér finnst það í það minnsta fulldjúpt í árinni tekið.“
Þetta sagði hæstv. ráðherra orðrétt. Þetta er ekki í neinu samhengi við það sem okkur hefur verið sagt í tvö ár, að þetta gangi allt út á að fletja kúrfuna, verja heilbrigðiskerfið og þar fram eftir götunum. Við eigum að tala um hlutina eins og þeir eru og við erum í þessari stöðu, alla vega er minn skilningur sá (Heilbrrh.: Samspil.) að við séum í þessari stöðu til að Landspítalinn og heilbrigðiskerfið ráði við verkefnið. Nú blasir við að verkefnið hefur minnkað svo mjög að umfangi að við eigum að hætta þessari vitleysu. Við eigum að leyfa veitingamönnum að selja þjónustu þeim sem vilja kaupa af þeim þjónustuna. Við eigum að leyfa fólki, fjölskyldum og fyrirtækjum og listamönnum og öðrum að koma saman og skemmta, hitta þá sem þau vilja hitta. Við erum enn með tíu manna samkomutakmarkanir. Þetta er allt eitthvert brjálæði. Við eigum að hætta þessari vitleysu. Við eigum að opna landið. Við eigum að aflétta takmörkunum og snúa aftur til þess frelsis og þess samfélags sem við þekktum hér áður. Við getum ekki sætt okkur við það að þetta sé að gerast hægar en nokkur kostur er í þeirri stöðu sem nú blasir við okkur.