152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.

[12:07]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessari umræðu; hæstv. heilbrigðisráðherra og þeim hv. þingmönnum sem hér hafa tekið til máls. Ég held að rauði þráðurinn í þessu sé ofureinfaldlega sá að það er kominn tími til verulegra tilslakana. Sú afléttingaaðgerð sem boðuð er á morgun hlýtur að taka mið af þeim sjónarmiðum sem hér hafa birst enda erum við á allt öðrum stað í faraldrinum en við höfum verið áður, með þetta miklu vægara afbrigði þar sem innlagnahlutfallið er vel undir 0,2% miðað við 2,5% þegar við vorum að bregðast við delta-afbrigðinu. Ég, rétt eins og hv. þm. Bergþór Ólason, skildi ekki alveg orð heilbrigðisráðherra hér í upphafi um að það væri fullmikil einföldun að segja að þung staða á spítalanum væri fyrst og fremst orsökin fyrir þeim þungu takmörkunum sem hefur oftar en ekki réttilega verið hent yfir þjóðina. Sú staða á ekki við í dag, eins og ég var að rekja.

Ég spyr: Af hverju höfum við verið að fletja út kúrfuna í tvö ár ef ekki vegna þess að við erum að taka tillit til spítalans? Af hverju höfum við verið að spyrja sérfræðinga spítalans um stöðuna á hverjum einasta degi? Af hverju höfum við haft áhyggjur af starfsfólki spítalans á hverjum einasta degi í faraldrinum, álaginu á það? Og af hverju höfum við haft svona miklar áhyggjur af því að sjúklingar á spítalanum, hvort sem þeir eru þar inni út af Covid eða ekki, fái viðunandi þjónustu og svo allir hinir sem leggjast inn út af öðrum veikindum? Þetta hefur allt verið til þess að vernda spítalann, fletja út kúrfuna, bjarga heilbrigðiskerfinu. Þannig að orð hæstv. heilbrigðisráðherra hér áðan hljóta að vera þess eðlis að við köllum eftir nánari skýringu á þeim.

Ég óska einnig eftir því að hæstv. heilbrigðisráðherra svari þeirri spurningu sem ég kom fram með í upphafi máls míns. Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér fyrir nokkrum dögum að lagaskilyrði væru ekki lengur til staðar, forsendur væru brostnar. Takmarkanirnar eru umfram tilefni, meðalhófs er ekki gætt. Er hæstv. heilbrigðisráðherra sammála því? Og ef svo er, þarf ekki að fara í verulegar afléttingar hratt og örugglega fremur en að bíða fram í næstu viku? Ef mat hæstv. fjármálaráðherra er rétt þá erum við að brjóta lög. Við erum að brjóta grundvallarmannréttindi á fyrirtækjaeigendum, starfsfólki þeirra og atvinnugreinum, menningunni, íþróttalífinu, með því að bíða hér í viku og jafnvel lengur.

Ég vil líka nefna það að faraldurinn hefur leitt í ljós veikleika heilbrigðiskerfisins. Ef það hefur ráðið við hann megum við aldrei gleyma því að það er vegna þess að fólki var bannað að hittast, fólki var bannað að vinna, fólki var bannað að halda fundi, fólki var bannað að njóta menningar og lista og íþrótta til þess að heilbrigðiskerfið réði við álagið. Það þurfti að færa verulegar fórnir. Þannig að það er ekki alveg sanngjarnt að segja úr samhengi að heilbrigðiskerfið hafi staðist prófið. Hins vegar má alveg færa fyrir því rök að fólkið í landinu, íbúar þessa lands, (Forseti hringir.) hafi staðist prófið með glæsibrag.