sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir mjög góða umræðu. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson fór í lokaorðum sínum með öðru orðalagi yfir það sem ég var að reyna að túlka í upphafsræðu minni og lagði áherslu á samspilið á milli samkomutakmarkana og mikilvægis þess að tryggja hverju sinni að heilbrigðiskerfið okkar ráði við stöðuna. Við þekkjum þetta samspil. Það þarf ekkert að orða það öðruvísi. Það er auðvitað alltaf mikilvægt að horfa til þess að tryggja að innlagnir verði ekki fleiri en svo að kerfið ráði við það hverju sinni. Þess vegna setjum við á samkomutakmarkanir þannig að við hlaupum öll saman. Þetta er það sem ég vildi leggja áherslu á í byrjun.
Það er síðan alveg rétt sem kemur fram í þessari umræðu, að við erum á miklum tímamótum og það er fullt tilefni til að vera bjartsýn. Við erum komin á þann stað í þessum faraldri að geta farið í afléttingar. Bara nú í vikunni fórum við í verulegar afléttingar sem snúa að einu helsta sóttvarnaúrræðinu, sem er sóttkví. Það mun létta álagið varðandi skimanir, það mun létta álagið á fjölskyldur, það mun létta álagið varðandi rakningu í skólastarfi. Það mun létta álagið varðandi ýmiss konar starfsemi. Mun það valda auknum smitum? Mögulega. Við sjáum það hér á næstu dögum, og þetta verða snúnar næstu vikur. En það lítur út fyrir, miðað við hvernig mál eru að þróast, að við getum farið í afléttingar og við munum boða afléttingaráætlun hér á morgun.
Þegar kemur að því hvernig við túlkum lögin — það hefur aðeins verið komið inn á það, hv. framsögumaður, málshefjandi umræðunnar, gerði það — koma inn mjög margir þættir. Það eru samfélagslegir þættir, ef við förum í 12. gr. sóttvarnalaga, og þættir sem snúa að þeirri frumskyldu að kerfið fletji út kúrfuna, eins og einhverjir orðuðu það hér, sem við höfum verið í allan tímann. Þetta spilar saman og við höfum þurft að leggja mikið á okkur sem samfélag. Það þarf alltaf að skoða aðstæður í heildstæðu mati hverju sinni, í samhengi við aðstæður eins og þær þróast, nýtt veiruafbrigði, nýjar áskoranir, innlagnarhlutföll, legutíma og svo það sem samfélagið er að takast á við hverju sinni og þær skerðingar sem við komum á. Það er erfitt að túlka 12. gr. sóttvarnalaga með afgerandi hætti, að tafarlaust eigi að aflétta aðgerðum á þeim grundvelli einum að þróunin verði jákvæðari en við sáum fyrir þegar síðustu reglur voru settar. (Forseti hringir.) Það verður að fara fram heildstætt mat. Það tekur ákveðinn tíma. Það er þetta ferli sem talað hefur verið um hér og við viljum að þingið (Forseti hringir.) taki meiri þátt í ákvörðununum. Ég er mjög opinn fyrir þeirri umræðu og þeim tillögum.