152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[12:52]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Vegna orða hæstv. forsætisráðherra vil ég benda henni á að fræðin segja að til að straumlínulaga 700 manna vinnustað þurfi undirbúning en hann skortir algjörlega í þessu máli. En ég kem aðallega hingað upp til að bregðast við orðum hæstv. ráðherra menningarmála og svo heitir hann eitthvað fleira, ég ítreka beiðni mína um að heiti ráðuneyta og ráðherra komi hingað í púltið. Það er ekki merki um góða fjárfestingu í börnum þegar 13 ára gömlu barni sem á að baki þrjár sjálfsvígstilraunir á síðustu tíu mánuðum er vísað út af BUGL inn á biðlista næstu 12 mánuði eftir nauðsynlegri þjónustu, lífsnauðsynlegri þjónustu. Það er þetta sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á. Það er svona sem hún stendur sig í heilbrigðismálum barna. Það er svona sem hún stendur sig. Hún er fallin á prófinu og hún ætlar bara að sinna verkefnum af þessum toga. Það heitir ekki að fjárfesta í börnum, hæstv. ráðherra.