skattar og gjöld.
Frú forseti. Jú, við getum verið sammála um að frumvarp um frestun á greiðslu opinberra gjalda hafi verið unnið undir mikilli tímapressu og hafi verið nauðsynlegt að klára það. En tímapressan var óþörf vegna þess að ráðherrann hefði getað komið með málið fyrr og ég hvet hv. þingmann til að pressa á ráðherrana sína að koma fyrr með mál. Þetta snýst eiginlega bara um það, snýst um það að við sýnum hvert öðru þá virðingu að vera ekki að búa til aðstæður þar sem við getum ekki unnið málin jafn vel og við viljum, hvort sem við sitjum uppi í Stjórnarráði eða niðri í þingflokksherbergjum.
Hv. þingmaður getur auðvitað ekki svarað fyrir gjörðir bílaframleiðenda, eins og hún segir sjálf, sem betur fer og engin ástæða til að bera blak af þeim sem urðu uppvísir að svindli í „dísilgate“ og þurftu að borga fyrir það einhverjar, ég kann ekki að umreikna það úr evrum, grilljónir í sektir fyrir svindl. En með því einmitt að þessi liður hefur aldrei farið í gegnum það að vera unninn í ráðuneyti, lagður fram af ráðherra, rýndur af fleirum en bara þeim sem standa í innflutningi á bílum og fengið slíka þinglega meðferð, þá er rosalega erfitt að segja að við séum ekki óvart að hleypa einhverjum skussum með inn í þetta ákvæði. Það er einmitt af því að þetta snýst um að endurnýja þennan flota ökutækja að það skiptir svo miklu máli að við séum að gera það á besta mögulegan máta þannig að flotinn, sem verður væntanlega á götunum í 10–20 ár, losi sem minnst af gróðurhúsalofttegundum. Til þess dugar gamli staðallinn einfaldlega ekki.