fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég vil vekja athygli á því að við höfum nú þegar frestað gjalddögum opinberra gjalda fyrir þessa rekstraraðila þannig að þeir geti frestað tveimur gjalddögum á fyrri hluta þessa árs fram á síðari hluta ársins. Það hefur þegar tekið gildi og hefur eflaust hleypt súrefni til margra þessara aðila. Svo verð ég sömuleiðis að vekja athygli á því að síðustu herðingar, samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis, áttu sér stað um miðjan þennan mánuð. Ég verð bara að segja alveg eins og er að ég held að við höfum brugðist við nokkurn veginn jafn hratt og við mögulega gátum. Við höfðum, þegar þing kom saman, undirbúið þingmál sem varðaði veitingageirann. Við höfðum rætt um það frá því fyrir áramót að eðlilegt væri að koma til móts við þá sem höfðu sætt miklum takmörkunum á opnunartíma og við lækkuðum þröskuldinn fyrir inngöngu inn í það úrræði fyrir veitingageirann sérstaklega. En það var ekki gott að sjá það fyrir að það myndi koma til lokana eins og nú hefur gerst. En um leið og það lá fyrir var augljóst að við myndum koma með málið sem er á dagskrá, þ.e. að veita stuðning til þeirra sem er gert að loka sinni starfsemi.
Ég tek undir það með þingmanninum að það skiptir máli að koma úrræðinu í virkni sem allra fyrst og það sama gildir um almennu viðspyrnustyrkina. Við höfum verið að rýna í veltutölurnar og sjáum að það er slaki í kortaveltu innan lands og erlend kortavelta, sem sagt á Íslandi, er sömuleiðis að skreppa saman umfram það sem vænst hafði verið á fyrstu vikum þessa árs. Það gefur tilefni til að opna aftur á almenna viðspyrnustyrkjaúrræðið í fjóra mánuði eins og ég mun leggja til í frumvarpinu sem kemur hingað inn í þingið, vonandi sem allra fyrst.