fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Frú forseti. Ég er sammála mörgu af því sem hér kom fram í ræðu hv. þingmanns rétt í þessu og ef ég stæði sporum fjármálaráðherra þá myndi ég velja minn besta mann, hvort sem það væri Hersir eða einhver annar, einhvern verkefnastjóra þess að láta þann góða vilja sem birtist í þessu máli styðja við þá innviði sem við búum að í víðu samhengi veitingaþjónustu, gistiþjónustu, viðburðahaldi, menningarstarfsemi og öðru. Það blasir við mjög erfið staða og eins og var bent á áðan þá tekur þetta dálítinn tíma, það er dálítill flækjufótur að komast í það að geta rönd við reist. Það var viðurkennt af stjórnvöldum hér fyrir meira en ári síðan að staðan væri force majeure, þetta væri óviðráðanlegt ástand rétt eins og um jarðskjálfta, eldgos eða mannskaðaveður væri að ræða og þá varð til sú stefna sem hér er verið að framfylgja. En það reyndist mörgum kollegum mínum erfitt að komast inn í þá röð og fá þær úrbætur sem henta mættu best alveg eins og blasir við núna. Nefnt var dæmi um mixermanninn eða ljósaleiguna eða hvað það er. Þetta eru fyrirtæki sem eru að fótum fram komin og margir einstaklingar, margir einyrkjar, eru kannski í mun verri stöðu núna en þeir voru fyrir ári síðan af því það óraði engan fyrir því að þetta yrði svona langvarandi og þrálátt. Þess vegna vil ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að setja þetta mál í einhvers konar forgangsvinnu, einhvers konar verkefnastjórn sem tekur utan um þá sem eru núna um komandi mánaðamót að lenda hugsanlega í óafturkræfum þrotum vegna þess að það eru mun alvarlegri aðstæður heldur en menn gera sér að líkindum almennt grein fyrir. Og rétt eins og menn geta beðið um álit Skattsins á því hvort tiltekin viðskipti falla í þennan flokk eða hinn þá hlýtur að vera hægt að búa til einhvers konar kerfi þar sem þú getur fengið einhvers konar staðfestingu á því að þú sért solidum umsækjandi um þau bjargræði sem til boða standa. Þess vegna held ég að það væri hægt að bjarga mörgum, bæði einyrkjum, einstaklingum og fyrirtækjum, frá því að lenda á svörtum listum og rauðum sem myndu gera þeirra framtíð mun flóknari og erfiðari en ella þyrfti að vera. Ég fagna auðvitað því sem hér er verið að reyna að gera fyrir fólk en bið bara um hraðafgreiðslu á einhverju sem myndi geta veitt það viðnám sem þarf til og veitt þá viðreisn sem hér er þörf, horfandi á Viðreisnarþingmann á leiðinni í stólinn.